Fótbolti

Haaland fær frí vegna jarðar­farar

Sindri Sverrisson skrifar
Erling Haaland skoraði gegn Arsenal um helgina og ætti að geta mætt Newcastle næsta laugardag.
Erling Haaland skoraði gegn Arsenal um helgina og ætti að geta mætt Newcastle næsta laugardag. Getty

Erling Haaland er farinn til Noregs vegna jarðarfarar og verður ekki með Manchester City í kvöld þegar liðið mætir Watford í enska deildabikarnum í fótbolta.

Haaland er mættur til Noregs til að syrgja náinn fjölskylduvin, Ívar Eggja, sem til að mynda var svaramaður í brúðkaupi Alfie Haaland, pabba Erlings.

Markahróknum var boðið að taka sér leyfi eftir að Eggja lést en afþakkaði það og spilaði leikina gegn Brentford, Inter og Arsenal, og skoraði í þeim þrjú mörk.

Áður hafði hann opnað sig um það á samfélagsmiðlum hve mikið hann saknaði Ívars, sem var 59 ára þegar hann lést.

Haaland flaug til Noregs í gær vegna jarðarfararinnar, samkvæmt Manchester Evening News, en talið er að hann verði mættur og klár í slaginn í næsta deildarleik City sem er við Newcastle á útivelli á laugardaginn.

Liðsfélagar Haalands hafa, samkvæmt frétt MEN, verið duglegir við að styðja við hann á erfiðum tímum og þeir sendu til að mynda blóm í einkaboxið hans á Etihad-leikvanginum, þar sem hans fólk fylgdist með leik City við Brentford.

„Til þess eru lið. Við styðjum hver annan og reynum að hjálpa. Að þessu sinni var það Erling en við reynum allir að hjálpa hver öðrum. Ekki bara við liðsfélagarnir heldur allir í félaginu,“ sagði Manuel Akanji, miðvörður City.

Haaland setti met gegn Brentford með því að hafa skorað níu mörk í fyrstu fjórum leikjum úrvalsdeildarinnar, og með markinu gegn Arsenal á sunnudag hefur hann einnig sett met yfir flest mörk í fyrstu fimm leikjum tímabils.


Tengdar fréttir

Haaland ekki refsað

Erling Haaland verður ekki refsað fyrir það að kasta boltanum viljandi í höfuð Gabriels eftir jöfnunarmark Manchester City gegn Arsenal í gær, í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.

Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig

Arsenal og Manchester City, liðin sem höfnuðu í efstu tveimur sætum ensku úrvalsdeildarinnar á síðasta tímabili, gerðu dramatískt 2-2 jafntefli er liðin mættust í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×