Félagslegi þátturinn vegur þungt á rafíþróttaæfingum Fjölnis Þórarinn Þórarinsson skrifar 1. október 2024 11:41 Þórir Viðarsson, aðalþjálfari Fjölnis í rafíþróttum, segir gríðarlega fallegt að sjá krakka kynnast í gegnum tölvuleiki. Ungmennafélagið Fjölnir varð 26. aðildarfélagið að Rafíþróttasambandi Íslands í liðinni viku þegar stjórn sambandsins samþykkti aðildarumsókn nýstofnaðrar rafíþróttadeildar Fjölnis. „
Við vorum að stofna rafíþróttadeild Fjölnis ásamt Next Level Gaming,“ segir Þórir Viðarsson, aðalþjálfari Fjölnis í rafíþróttum, og bætir við rafíþróttastarf félagsins sé nú þegar í fullum gangi og hafi í raun byrjað í sumar. „Við vorum með sumarnámskeið í Egilshöll sem fór alveg fram úr okkar björtustu áætlunum þegar um 200 krakkar mættu. Þetta var bara geggjað. Þau höfðu mikinn áhuga og viðbrögðin hafa sýnt að við vorum að gera eitthvað skemmtilegt,“ segir Þórir. „Þetta er náttúrlega nýtt sport á Íslandi og fólk er ennþá bara að átta sig á því að þetta sé til og í boði fyrir krakka,“ heldur Þórir áfram og segir reynsluna þegar hafa sýnt að mikil eftirspurn er eftir öflugu rafíþróttastarfi í fjölmenni Grafarvogs og nágrennis. Falleg samlegðaráhrif „Grafarvogurinn er eitt fjölmennasta hverfi landsins og þetta er náttúrlega ekki bara fyrir Grafarvoginn heldur líka fólkið í kringum okkur. Í Mosfellsbæ eru til dæmis engar rafíþróttir og þaðan geta þau náttúrlega sótt þær hingað í Egilshöllina sem er svo mikill miðpunktur þegar kemur að svona íþróttaiðkun,“ segir Þórir og bætir aðspurður við að Egilshöllin verði að sjálfsögðu heimavöllur Fjölnis í rafíþróttum. Hann segist einnig þegar hafa orðið var við ákaflega falleg samlegðaráhrif af stofnun rafíþróttadeilarinnar í þeirri alhliða íþróttamiðstöð sem Egilshöllin er. „Okkur finnst alveg frábært að hingað til okkar eru krakkar að koma á æfingar sem hafa kannski ekki fundið sig í öðrum íþróttum. Þau koma oft gangandi eða með strætó eftir skóla með vinum sínum sem eru kannski að fara á æfingu í öðrum íþróttum hjá Fjölni og það er fallegt að sjá síðan einn fara á rafíþróttaæfingu og annan á æfingu í fótbolta, körfubolta eða einhverju þannig.“ Markvissar æfingar Rafíþróttaþjálfararnir hjá Fjölni eru tveir og Þórir segir þá báða hafa farið í gegnum þjálfaranám Rafíþróttasambands Íslands auk þess sem hann hafi einnig lokið námi hjá Esports Coaching Academy. Rafíþróttaæfingarnar hefjast á samveru, spjalli og fræðslu um rafíþróttir og ýmislegt þeim tengt eins og til dæmis mikilvægi góðs svefns og hvernig hægt er að verða enn betri spilari með því að kunna að læra af mistökum. Þá er farið í ýmsa leiki aðra en tölvuleiki og æfingarnar byrja á teygjum og æfingum áður en farið er í tölvuna. „Margir foreldrar halda að við hendum bara krökkunum beint í tölvur og látum þau skjóta á hvort annað en þetta er svo langt frá því. Æfingarnar eru alveg þaulskipulagðar til þess að krakkarnir fái sem mest út úr þeim og læri bara alls konar leiðir til að bæta sig bæði í tölvuleikjum og líka, í raun og veru, bara í lífinu.“ Áhersla á félagslega þáttinn Þórir leggur áherslu á að félagslegi þátturinn sé í raun þungamiðjan í rafíþróttaæfingunum og þjálfararnir leggi mikið upp úr því að krakkarnir kynnist hvoru öðru og hópnum því blandað saman þótt vinir fái auðvitað stundum að spila saman. „Við látum krakkana kynnast þannig að vinir fá ekki alltaf að spila saman og erum rosalega mikið að vinna með það að hérna erum við komin saman á æfingu og erum öll í sama liði. Þau eiga þarna náttúrlega sameiginlegt áhugamál og það er alveg magnað hversu oft ég hef séð krakka kynnast í gegnum tölvuleiki. Það er bara gríðarlega fallegt þegar það gerist og ég þekki þetta bara af eigin reynslu eftir að hafa kynnst mínum bestu vinum í gegnum tölvuleiki.“
Rafíþróttir Tengdar fréttir Háhraðahressleiki og hugsjónaorka hjá Next Level Gaming „Við erum gríðarlega stolt af Next Level Gaming enda er þetta búið að vera algjör rússíbani og bæði skemmtilegt og lærdómsríkt verkefni sem er bara rétt að byrja,“ segir Harpa Ægisdóttir, hjá Next Level Gaming, um glæsilegan leikjasal sem opnaði í Egilshöll í byrjun vikunnar. 12. ágúst 2024 09:27 Mest lesið Í beinni þegar tilkynnt var að hann væri rekinn Fótbolti Gáfu skít í yfirmann sem hreykti sér af þeirra afrekum Fótbolti Hélt hann væri laus við þessi mál Fótbolti Sonur Zlatans í fyrsta sinn í landslið Fótbolti Scholes brjálaður: De Ligt geti ekkert og ten Hag þjálfi liðið varla Enski boltinn Sævar og Stefán misstu andlitið í beinni: „Það leið næstum yfir mig“ Körfubolti Fyrirliðinn segir Íslendingaliðið of gott fyrir C-deildina Enski boltinn Arftaki Þóris fundinn: „Þetta eru stórir skór að fylla í“ Handbolti Versta byrjun í sögu efstu deildar Fótbolti Forsetinn Eto‘o fær ekki að mæta á leiki þjóðar sinnar Fótbolti Fleiri fréttir TÍK horfir fram á veginn frá Bessastöðum Félagslegi þátturinn vegur þungt á rafíþróttaæfingum Fjölnis TDE hirtu Leifarnar og tvö stig í leiðinni Jötunn og Böðlar berjast í bökkum á botninum Baráttan harðnar í Valorant Stofnandi Rafíþróttasambands Íslands í Esports Hall of Fame Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð Fortnite er aðalleikurinn Óbreytt staða á toppnum í Rocket League „Ég er í sjokki eftir þennan leik“ Ármenningar taplausir á toppnum Mikið fjör á fjölmennu ungmennamóti Öruggir sigrar í tveimur einvígum á netskákmótinu Valkyrjur og Venus ósigraðar á toppnum Dusty aftur á toppnum eftir sigur á Kano Dusty og 354 keyrðu sig í gang með geggjaðri viðureign Frábær endasprettur hjá Veca gerði út af við Hött Óvenju mörg ný andlit í Rocket League Grimm barátta og sviptingar í Fortnite Samstilltir Þórsarar afgreiddu ryðgaða Böðla Klutz réði ekkert við GoldDiggers Dusty enn á toppnum eftir tvær umferðir Metþátttaka í kvennadeildinni í Valorant Bestu hakkavélarnar byrja mótið sem þjálfarar Þór byrjar Ljósleiðaradeildina með látum Spennan magnast í Fortnite-samfélaginu Tölvuleikir auðvelda krökkum að kynnast og upplifa sögur Sjá meira
Háhraðahressleiki og hugsjónaorka hjá Next Level Gaming „Við erum gríðarlega stolt af Next Level Gaming enda er þetta búið að vera algjör rússíbani og bæði skemmtilegt og lærdómsríkt verkefni sem er bara rétt að byrja,“ segir Harpa Ægisdóttir, hjá Next Level Gaming, um glæsilegan leikjasal sem opnaði í Egilshöll í byrjun vikunnar. 12. ágúst 2024 09:27