Samstilltir Þórsarar afgreiddu ryðgaða Böðla Þórarinn Þórarinsson skrifar 17. september 2024 11:00 Selir, Tröll-Loop og Þór lögðu andstæðinga sína að velli í hressilegum leikjum í 2. umferð Tölvulistadeildarinnar í Overwatch. Þrír leikir fóru fram í 2. umferð Tölvulistadeildarinnar í Overwatch á laugardaginn og að henni lokinni er lið Þórs í efsta sæti eftir 3-0 sigur á Böðlunum sem máttu sín ekki mikils gegn þéttum andstæðingum sem hafa lengi spilað saman.
Annarri umferð Tölvulistadeildarinnar í Overwatch lauk með þremur leikjum á laugardaginn þar sem Selir sigrðuðu Dusty 3-1, Jötunn tapaði 0-3 gegn Tröll-Loop og Böðlar máttu lúta í lægra haldi gegn sterku liði Þórs, 0-3. Þessi lokahnykkur 2. umferðar markaði einnig upphaf beinna útsendinga frá leikjum í Tölvulistadeildinni á þessu tímabili en þar stóðu þeir Ólafur Aðalsteinn Jónsson og Rúnar Freyr Einarsson vaktina og tóku stöðuna sem eins og í öllu alvöru sporti breytist vitaskuld með hverjum leik. Lið Þórs er í efsta sæti deildarinnar eftir tvær umferðir og að hafa lagt Böðla fremur auðveldlega að velli um helgina. Lýsendurnir voru sammála um að sterkt lið Þórs nyti þess greinilega að hafa spilað saman lengi. Ólíkt andstæðingunum sem eru enn að finna taktinn eftir tvö 3-0 töp hingað til. Böðlarnir Snær Björnsson og Björgvin Gunnar Björgvinsson voru engu að síður brattir að leik loknum og sögðust í viðtali við Ólaf og Rúnar enn vera jákvæðir þótt tímabilið hafi ekki byrjað vel hjá þeim. Þeir þurfi bara að skafa af sér mosann og ryðið. Böðlarnir Snær og Björgvin Gunnar báru sig vel eftir tap gegn Þór í 2. umferð. Böðlarnir hafi byrjað á tveimur erfiðum leikjum sem þeir muni draga lærdóm af og vitandi hvað þeir þurfi að gera muni þeir koma sterkari inn næst. „Við þurfum að tala meira saman og æfa samvinnuna,“ sagði Snær og bætti við að liðsmenn eigi eftir að læra betur hvor á annan og efla gagnkvæmt traust sín á milli. Lið Þórs leiðir í Tölvulistadeildinni í Overwatch þegar tvær umferðir eru búnar.
Rafíþróttir Tengdar fréttir Þór byrjar Ljósleiðaradeildina með látum „Þetta var nú bara tiltölulega auðvelt,“ segir Ásmundur Viggósson, sem var í miklu stuði þegar Þór lagði Sögu í fyrstu umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike í gærkvöld. 4. september 2024 14:38 Mest lesið Kjartan Atli lætur af störfum Körfubolti „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ Enski boltinn Indverjar brjáluðust út í Messi og brutust inn á völlinn Fótbolti Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Enski boltinn Ian Rush lagður inn á sjúkrahús Enski boltinn Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum Enski boltinn Sakna Orra enn sárt og vandræðin aukast Fótbolti Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Enski boltinn Elsti maðurinn til að vinna leik á HM í pílu Sport Körfuboltakvöld í áfalli yfir vörn Álftaness: „Bara kjánalegt að horfa á þetta“ Körfubolti
Þór byrjar Ljósleiðaradeildina með látum „Þetta var nú bara tiltölulega auðvelt,“ segir Ásmundur Viggósson, sem var í miklu stuði þegar Þór lagði Sögu í fyrstu umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike í gærkvöld. 4. september 2024 14:38