Kefla­vík fagnaði sigri í botnslag Bestu deildarinnar

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Frá leik Keflavíkur í Bestu deildinni fyrr á tímabilinu.
Frá leik Keflavíkur í Bestu deildinni fyrr á tímabilinu. Vísir/Diego

Tvö neðstu lið Bestu deildar kvenna mættust í 12. umferð og Keflavík fagnaði 1-0 sigri gegn Fylki.

Eva Lind Daníelsdóttir kom Keflvíkingum yfir eftir um tuttugu mínútna leik með öflugu innanfótarskoti rétt fyrir utan teig.

Fylkir komst nálægt því að jafna strax fimm mínútum síðar en skot Guðrúnar Karitasar flaug rétt framhjá markinu.

Annars frekar fátt um færi í fyrri hálfleiknum og það batnaði ekki mikið í seinni hálfleik.

Guðrún Karitas fékk hættulegasta færið þegar hún slapp ein gegn markverði, en hitti boltann illa og þrumaði lengst framhjá.

Hvorugt lið var annars líklegt til að skora og leikurinn fór fram í miklu miðjumoði þegar boltinn var ekki uppi í loftinu eða útaf.

Fjöldi gulra spjalda fór á loft fyrir kjaftbrúk, brot og reiðisköst en annað mark var ekki skorað, lokatölur 1-0 og Keflavíkurkonur rífa sig upp af botninum.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira