Tónlist

Ungstirni gefur út sitt fyrsta lag

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Lagið er það fyrsta sem Arnaldur gefur frá sér.
Lagið er það fyrsta sem Arnaldur gefur frá sér. Arnaldur Halldórsson

Menntskælingurinn, söngvarinn og leikarinn Arnaldur Halldórsson hefur gefið frá sér sitt fyrsta lag. Það heitir Tengist þér og var gefið út ásamt tónlistarmyndbandi 21. júní síðastliðinn. Arnaldur segir lagið fjalla um sígildasta viðfangsefni popplaga frá örófi alda, nefnilega ástina.

Nánar tiltekið segir Arnaldur að lagið sé um tiltekinn dag í skammdeginu þegar ekkert virtist ganga. Inntur eftir lýsingu á laginu segir Arnaldur að það sé spes.

„Þetta er lag sem ég samdi einhvern tímann held ég í jólafríinu. Svo er ég búinn að vera að vinna að því síðan. Þetta er spes lag, finnst mér allavega. Þetta er um þetta klassíska, ástina. En ég sé þetta lag sem einhvern einn dag sem mér leið eitthvað skryngilega og þetta voru orðin sem komu út,“ segir Arnaldur.

Lagið var framleitt af Arnaldi sem samdi einnig textann. Arnaldur samdi einnig lagið en undir söng Arnaldar spilar Þórhildur Þorsteinsdóttir á bassa og Valgerður Birna Magnúsdóttir syngur bakraddir.

Arnaldur er enginn græningi í heimi tón- og sviðslista þrátt fyrir ungan aldur. Eins og fram kom bar Arnaldur sigur úr býti í Jólastjörnu Björgvins árið 2017 en Arnaldur hefur einnig leikið og sungið í sýningum á borð við Matthildi og Kardemommubænum í Þjóðleikhúsinu. Auk þess hefur hann talsett teiknimyndum og tekið þátt í ýmsum verkefnum og sýningum á sviði sviðslista.

Tónlistarmyndbandið við lagið Tengist þér má sjá á Instagram-síðu Arnaldar eða með því að smella hér.

Arnaldur er að vinna í breiðskífu sem hann stefnir á að gefa út í haust. Hann segir plötuna ekki tilbúna en lofar góðri sprengju.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.