Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir að venju fyrir um gengi liðanna í Bestu deild karla með árlegri spá sinni fyrir mótið. Keppni í deildinni hefst með leik Stjörnunnar og Íslandsmeistara Víkings laugardaginn 6. apríl.
Íþróttadeild spáir KA 6. sæti Bestu deildarinnar í sumar og liðið fari upp um eitt sæti frá síðasta tímabili.
Eftir að hafa lent í 2. sæti Bestu deildarinnar 2022 gerðu KA-menn sér vonir um titilbaráttu á síðasta tímabili. Þær vonir urðu ekki að veruleika en tímabilið var samt eftirminnilegt fyrir norðan. KA endaði vissulega bara í 7. sæti Bestu deildarinnar en komst í bikarúrslit í fyrsta sinn í nítján ár og vann tvö einvígi í Sambandsdeildinni.

Litlar breytingar hafa orðið á leikmannahópi KA í vetur. Færeyingarnir Jóan Símun Edmundsson og Pætur Petersen eru horfnir á braut og Dusan Brkovic fór í FH eftir að hafa reynst KA svo vel undanfarin þrjú ár. Til að fylla skarð hans fengu KA-menn Hans Viktor Guðmundsson, fyrirliða Fjölnis.
Flestum þótti þetta vera full lítil styrking fyrir lið KA en í síðustu viku breyttist allt þegar Viðar Örn Kjartansson samdi við félagið. Það er gríðarleg búbót fyrir KA-menn fá Viðar sem hefur átt flottan feril í atvinnumennsku og orðið markakóngur í tveimur deildum (Noregi og Ísrael). Viðar raðaði inn mörkum síðast þegar hann spilaði á Íslandi (2013) og ætti að gera það aftur núna.

Það ætti því ekki að mæða jafn mikið á járnkarlinum Hallgrími Mar Steingrímssyni og síðustu ár. Hann hefur spilað alla 160 leiki KA síðan liðið komst aftur upp í efstu deild, skorað 53 mörk og gefið ógrynni stoðsendinga. Hallgrímur er upphafið og endirinn í sóknarleik KA-manna en hefur stundum vantað meiri stuðning. Hallgrímur missir af byrjun tímabilsins vegna veikinda en það verður í fyrsta sinn frá sumrinu 2015 sem hann missir af deildarleikjum.
Mörkum sveitunga Hallgríms, Ásgeirs Sigurgeirssonar og Elfars Árna Aðalsteinssonar, hefur fækkað en Harley Willard getur byggt ofan á góðan endasprett á síðasta tímabili, Jakob Snær Árnason er alltaf seigur og Sveinn Margeir Hauksson er í stöðugri sókn. Hann klárar reyndar ekki tímabilið þar sem hann er á leið út í nám til Bandaríkjanna.

KA lenti í 2. sæti síns riðils í Lengjubikarnum og missti af sæti í undanúrslitum á markatölu. KA-menn unnu svo Kjarnafæðismótið eins og alltaf.
Byrjunarlið KA er enn mjög sterkt, leikmannahópurinn er reyndur og skipulagið á liðinu er jafnan til mikillar fyrirmyndar. Og Viðari er ætlað að vera auka kryddið í súpuna sem Hallgrímur Jónasson er með í pottinum fyrir norðan.

Það er því kannski engin sérstök ástæða til að hafa miklar áhyggjur af KA. Fyrir komu Viðars var erfitt að sjá þá gera betur en í fyrra en eftir komu Selfyssingsins leyfa KA-menn sér eflaust að dreyma um Evrópubaráttu.