Draumahálfleikur Luton manna breyttist í martröð í seinni hálfleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2024 21:29 Antoine Semenyo fagnar öðru marka sinna fyrir Bournemouth í kvöld. Getty/Warren Little „Við erum að fara halda okkur uppi“ sungu stuðningsmenn Luton í fyrri hálfleiknum en þeir fögnuðu of snemma.
Bournemouth vann 4-3 endurkomusigur á Luton Town og er fyrir vikið nú fjórtán stigum fyrir ofan fallsæti. Þar sitja leikmenn Luton þremur stigum frá öruggu sæti. Það vantaði ekki mörkin og skemmtunina í botnbaráttuslag í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í Bournemouth í kvöld. Antoine Semenyo var hetja heimamanna því hann skoraði tvö síðustu mörk Bournemouth í leiknum sem endanlega breyttu tapi í sigur. Luton liðið missti niður þriggja marka forskot og varð að sætta sig gríðarlega svekkjandi tap. Á móti stigu leikmenn Bournemouth stórt skref í átta að því að tryggja endanlega veru sína í deildinni. Antoine Semenyo var hetja heimamanna því hann skoraði tvö síðustu mörk Bournemouth í leiknum sem endanlega breyttu tapi í sigur. Luton var vissulega í frábærum málum í hálfleik enda komið 3-0 yfir. Liðið fékk líka tækifæri til að skora fleiri mörk en heimamenn sýndu mikinn karakter í frábærri endurkomu sinni. Fyrsta markið skoraði Tahith Chong með skalla á 9. mínútu og Chiedozie Ogbene bætti öðru marki á 31. mínútu. Ross Barkley skoraði síðan þriðja markið í uppbótartíma fyrri hálfleiksins. Það leit því ekki út fyrir neitt annað en gríðarlega mikilvægan útisigur fyrir Luton í harðri baráttu liðsins fyrir áframhaldandi sæti í deildinni. Dominic Solanke minnkaði munninn í 3-1 á 50. mínútu og þeir voru síðan búnir að jafna eftir tvö mörk á tveimur mínútum. Ilya Zabarnyi skoraði það fyrra á 62. mínútu og Antoine Semenyo jafnaði síðan metin á 64. mínútu. Leikmenn Bournemouth voru ekki hættir og Antoine Semenyo skoraði sitt annað mark á 83. mínútu nú eftir stoðsendingu frá Enes Unal.
Enski boltinn Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira