Klopp skaut niður sögusagnir: „Hann er ekki heimskur“ Aron Guðmundsson skrifar 13. mars 2024 15:31 Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool Vísir/Getty Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool var spurður út í sögusagnir á blaðamannafundi í dag þess efnis að nýr framkvæmdastjóri knattspyrnumála hjá félaginu, Michael Edwards hafi beðið hann um að halda áfram sem knattspyrnustjóri Liverpool að loknu yfirstandandi tímabili. Þjóðverjinn, sem hefur gefið það út að yfirstandandi tímabil sé hans síðasta hjá Liverpool, var fljótur að skjóta þær sögusagnir niður.
Greint var frá ráðningu Edwards til Liverpool í gær og snýr hann aftur til félagsins eftir að hafa hætt sem yfirmaður knattspyrnumála hjá því árið 2022. Edwards kemur á ný inn í hlutina hjá Liverpool á tímapunkti þar sem að Klopp hefur nú þegar gefið það út að yfirstandandi tímabil sé hans síðasta sem knattspyrnustjóri félagsins. Fljótlega fóru af stað sögusagnir í breskum miðlum þess efnis að eitt af fyrstu verkum Edwards í nýju starfi hjá Liverpool hafi verið að reyna að sannfæra Klopp um að halda áfram sem knattspyrnustjóri félagsins fram yfir þetta tímabil. Miðað við svar Klopp, á blaðamannafundi fyrr í dag fyrir leik liðsins í Evrópudeildinni á morgun, virðast þær sögusagnir úr lausu lofti gripnar. „Nei. Hann er ekki heimskur,“ svaraði Klopp aðspurður um meinta beiðni Edwards. „Þetta var ekki til umræðu. Gætu þið ímyndað ykkur að ég myndi draga í land með þetta núna? Ég tek ekki svona ákvarðanir nema að vel ígrunduðu máli,“ svaraði Klopp sem er ánægður með endurkomu Edwards til félagsins. Þeir hafi átt gott samstarf á sínum tíma. „Nú er hann mættur aftur. Ég er ánægður með það. Ég vil sjá félagið vera á eins mögulega góðum stað og hægt er. Þetta er frábær lausn.“
Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira