Klopp líkti Danns við Littler Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. febrúar 2024 11:31 Eftir sigurinn á Southampton í gær líkti Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, Jayden Danns við ungstirni úr annarri íþrótt.
Danns skoraði tvö mörk eftir að hafa komið inn á sem varamaður þegar Liverpool vann Southampton, 3-0, í ensku bikarkeppninni í gær. Þetta voru fyrstu mörk þessa átján ára leikmanns fyrir Rauða herinn. Klopp var að vonum ánægður með Danns og hrósaði honum eftir leikinn á Anfield. „Þetta er svolítið eins og pílustjarnan sem er fínt í kvöld,“ sagði Klopp og vísaði til Lukes Littler sem skaust upp á stjörnuhimininn þegar hann komst í úrslit á HM í pílukasti um áramótin. Klopp hélt svo áfram að mæra Danns. „Hann er ótrúlega hæfileikaríkur. Það er ekki eðlilegt að átján ára strákur sé svona rólegur eins og hann sýndi í öðru marki Liverpool,“ sagði Klopp. Danns var sjálfur í skýjunum eftir fyrstu mörkin sín fyrir Liverpool og sigurinn í gær. „Ég gæti ekki verið ánægðari. Þetta er besti dagur lífs míns,“ sagði Danns við BBC eftir leikinn. „Ég hef horft á Liverpool síðan ég var ungur strákur og að skora tvö mörk fyrir framan Kop stúkuna er meira en mig dreymdi um. Ég gæti ekki verið hamingjusamari.“ Liverpool mætir Manchester United í næstu umferð ensku bikarkeppninnar. Næsti leikur Liverpool er gegn Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn.
Enski boltinn Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira