Morgunrútínan er til dæmis afar mismunandi hjá fólki, sem ýmist skilgreinir sig sem A eða B týpur. Sumir snúsa eins lengi og hægt er, aðrir skella sér í ræktina, út með hundinn, spila með fjölskyldumeðlimum eða dekra makann með kaffi í rúmið.
Hér rifjum við upp kaffispjallið með nokkrum á árinu sem er að líða.
Kristín Edwald hæstaréttarlögmaður á mjög auðvelt með að grenja úr hlátri, ekki síst yfir sínum eigin klaufaskap.
Sævar Freyr Þráinsson breytti um starfsvettvang á árinu sem er að líða. Þegar Vísir hafði samband við hann fyrir kaffispjallið var Sævar bæjarstjórinn á Akranesi. Þegar kaffispjallið birtist var hann tilkynntur nýráðinn forstjóri OR.
Sem dæmi um skemmtilegar morgunvenjur má nefna spilamennskuna. Tótla I. Sæmundsdóttir fræðslustýra Samtakanna 78 byrjar flesta daga á því að spila við yngri dóttur sína og Egill Halldórsson eigandi Wake Up Reykjavík og Górillu Vöruhúss byrjar daginn á því að spila Backgammon við kærustuna.
Síðan er það rómantíkin.
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR er einn þeirra sem byrjar alltaf daginn á kaffi með eiginkonunni í rúminu.
Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra Veitna, byrjar daginn á útileikfimi með eiginmanninum en viðurkennir gamla ást til söngvara Duran Duran. Ekki er laust við að eimi af þeirri hrifningu enn miðað við svör Sólrúnar.
Guðmundur Guðmundsson framkvæmdastjóri Akademias, markaðsstjóri Hooblamissir missir hins vegar kúlið yfir rómantískum myndum, þá sérstaklega Notebook sem teljast verður ein rómantískasta mynd allra tíma.
Gamlir fjölmiðlamenn halda áfram sem virkir fréttafíklar þótt starfsvettvangurinn breytist. Þetta má glöggt sjá í svörum Tinna Sveinssonar framkvæmdastjóri LóuLóu og Þóris Guðmundssonar, upplýsingafulltrúi hjá fjölþjóðasveit Atlantshafsbandalagsins í Eistlandi.
Tónlist er áberandi hjá mörgum gestum í kaffispjallinu en hjá Brynju Baldursdóttur forstjóra Greiðslumiðlunar Íslands, er það dansinn sem tryllir.
Af A týpum skoraði Sigþrúður Ármann, Culture & Communication Manager hjá Controlant sennilega hæst, svo snemma vaknar hún.
Af B týpum má nefna Ástu Dís Óladóttur prófessor og formann Jafnvægisvogar FKA sem segist liggja í rúminu í svona korter til tuttugu mínútur og íhuga að fara á fætur, áður en það síðan tekst.
Margir nefna að með aldrinum þróist þeir frá því að vera B týpur í A týpur og er Þórður Guðjónsson forstjóri Skeljungs einn þeirra, sem fer vel gaddaður framúr á morgnana.
Loks má nefna fjölmörg góð ráð sem gestir í kaffispjallinu veita, meðvitað eða ómeðvitað.
Til dæmis að fjölskyldumeðlimir séu spurðir yfir kvöldmatnum Hvað var það skemmtilegasta sem gerðist hjá þér í dag? eins og algengt er heima hjá Sigurði Pálssyni forstjóra Byko.
Eða það ráð frá Kristínu Sverrisdóttur verkstjóra framleiðsludeildar hjá Össuri og ráðstefnustýru hjá UAK sem hefur slökkt á öppum í símanum sínum til klukkan átta á morgnana.
Fleiri skemmtileg svör frá gestum í kaffispjallinu má sjá HÉR.