Leno líklega ekki refsað fyrir að hrinda boltastráknum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. desember 2023 12:01 Bernd Leno í leik Bournemouth og Fulham á öðrum degi jóla. getty/Robin Jones Bernd Leno, markvörður Fulham, sleppur væntanlega við refsingu frá enska knattspyrnusambandinu fyrir að hrinda boltastrák í leik gegn Bournemouth á annan í jólum.
Leno var ekki refsað í leiknum sjálfum fyrir að stjaka við boltastráknum þegar hann reyndi að ná boltanum af honum til að koma honum sem fyrst í leik. Þýski markvörðurinn var kominn með gult spjald á þeim tíma í leiknum og slapp því vel. Leno bað boltastrákinn seinna afsökunar og faðmaði hann. Stuðningsmenn Bournemouth fyrirgáfu honum hins vegar ekki og púuðu á hann það sem eftir lifði leiks. Auk þess að sleppa við refsingu í leiknum sjálfum er líklegt að Leno verði ekki refsað fyrir athæfið af enska knattspyrnusambandinu. Marco Silva, knattspyrnustjóri Fulham, kom Leno til varnar eftir leikinn gegn Bournemouth. „Ég veit ekki hvort þeir fengu fyrirmæli um það eða ekki en boltastrákarnir voru alltaf að tefja leikinn,“ sagði Silva. „Bernd vildi koma boltanum strax í leik og tók hann af boltastráknum. Hann hrinti honum ekki. Hann bað strákinn afsökunar.“ Bournemouth vann leikinn með þremur mörkum gegn engu. Fulham er í 13. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 21 stig.
Enski boltinn Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira