Arnar Birkir markahæstur í grátlegu tapi Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 19. desember 2023 19:42 Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði sjö mörk fyrir Amo í kvöld. Vísir/Vilhelm Arnar Birkir Hálfdánsson var markahæsti maður vallarins er liðið mátti þola grátlegt eins marks tap gegn Hallby í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 30-31.
Arnar Birkir og félagar voru án sigurs í seinustu sex leikjum í öllum keppnum fyrir leik kvöldsins og raunar hafði liðið aðeins unnið einn sigur í seinustu ellefu leikjum sínum síðan í byrjun október. Eftir jafnar upphafsmínútur í leik kvöldsins fór að halla undan færi hjá Arnari Birki og félögum og gestirnir í Hallby höfðu fimm marka forystu þegar flautað var til hálfleiks, staðan 13-18. Gestirnir skoruðu fyrsta mark síðari hálfleiks og náðu þar með sex marka forystu, en þá tóku heimamenn loksins við sér og minnkuðu muninn jafnt og þétt. Liðsmenn Amo náðu loksins að jafna í stöðunni 25-25 og tóku forystuna stuttu síðar. Heimamenn héldu forystunni allt þar til á lokamínútu leiksins þar sem gestirnir skoruðu síðustu tvö mörkin og unnu að lokum nauman eins marks sigur, 30-31. Arnar Birkir var markahæsti maður vallarins með sjö mörk fyrir Amo, en liðið situr nú í 11. sæti deildarinnar með 10 stig, jafn mörg og Hallby sem situr sæti neðar. Á sama tíma unnu Þorgils Jón Svölu Baldursson og félagar í Karlskrona óvæntan níu marka stórsigur gegn Skovde, 22-31. Þorgils komst ekki á blað fyrir gestina, en Karlskrona situr í 11. sæti deildarinnar með 12 stig, líkt og Amo. Skovde situr hins vegar í öðru sæti með 21 stig og sigur hefði komið þeim á toppinn.
Sænski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira