Segir svikara í herbúðum United Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. desember 2023 13:31 Manchester United hefur tapað tveimur leikjum í röð. getty/Clive Brunskill Andy Cole, fyrrverandi leikmaður Manchester United, telur að það sé svikari í leikmannahópi liðsins og hann komi í veg fyrir að liðið geti tekið skref fram á við.
Undanfarnar vikur hafa borist fréttir um óánægju leikmanna United með Erik ten Hag, knattspyrnustjóra liðsins. Þeir ku vera ósáttir við upplegg hans í leikjum og of mikið æfingaálag. Cole er handviss um að einhver í leikmannahópi United leki upplýsingum í fjölmiðla. „Það hlýtur að vera svikari? Ekkert lekur úr góðum búningsklefa, sama hvað hefur gengið á. Leikmönnum og þjálfurum sinnast. Það gerist í fótbolta. En ef klefinn er góður heyrir enginn af því,“ sagði Cole. „Upplýsingar leka svo reglulega hjá United og það myndi ekki gerast ef klefinn væri sameinaður. Upplýsingar leka þegar hlutirnir ganga ekki vel. Sumir leikmenn eru ekki sáttir með spiltímann sinn, gengi liðsins og sína eigin spilamennsku. Allt sem kemur úr þessum klefa er neikvætt, það hjálpar ekki liðinu og hindrar það í að taka skref fram á við.“ United féll út úr Meistaradeild Evrópu eftir 0-1 tap fyrir Bayern München á þriðjudaginn. Næsti leikur liðsins er gegn Liverpool á Anfield á sunnudaginn. United er í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar en Liverpool á toppi hennar.
Enski boltinn Mest lesið Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Enski boltinn Neuer eignaðist niðurlægjandi met Fótbolti Baldvin og Andrea fögnuðu sigri í fyrsta míluhlaupinu Sport Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Golf Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Fótbolti Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Fótbolti Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Enski boltinn Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Fótbolti Dagskráin í dag: Stjarnan með sóp á Króknum og Arsenal slæst við Atlético Sport Fleiri fréttir Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Sjá meira