Líkir Rice við Roy Keane Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. desember 2023 12:31 Declan Rice kastar treyju sinni upp í stúku eftir dramatískan sigur Arsenal á Luton Town á þriðjudaginn. getty/Julian Finney Að mati Jamies Carragher, fyrrverandi leikmanns Liverpool, hefur Arsenal-maðurinn Declan Rice verið áhrifamesti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í vetur. Hann líkti honum jafnframt við mikla Manchester United-goðsögn.
Arsenal keypti Rice frá West Ham United fyrir rúmlega hundrað milljónir punda í sumar. Enski landsliðsmaðurinn hefur farið afar vel af stað með Arsenal og skoraði meðal annars sigurmark liðsins á elleftu stundu gegn Luton Town á þriðjudaginn. „Declan Rice fyrir 105 milljónir punda, þvílík kjarakaup fyrir Arsenal. Mér líður eins með Rice og þegar Roy Keane fór til United 1993 fyrir metverð og Alan Shearer til Newcastle United 1996,“ skrifaði Carragher í pistli sínum fyrir The Telegraph. „Hann hefur sennilega verið áhrifamesti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og í hvert sinn sem ég horfi á hann minnir hann mig á Keane. Hann er með sömu nærveru og sendingahæfni hans er ótrúlega vanmetin.“ Carragher sagðist jafnframt frekar vilja hafa Rice í liði sínu en spænska miðjumanninn Rodri sem hefur verið einn besti leikmaður Manchester City undanfarin ár. Arsenal er með tveggja stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Næsti leikur liðsins er gegn Aston Villa á Villa Park á morgun.
Enski boltinn Mest lesið Orri Steinn einn verðmætasti ungi leikmaður heims Fótbolti Áhrifavaldur í ævilangt bann: „Ekkert sem afsakar það sem ég gerði“ Sport Anton Sveinn er hættur Sport Hræðileg mistök hjá Elíasi í Evrópudeildinni í gærkvöldi Fótbolti Galdraskot Óðins vekur athygli Handbolti Freyr segir ummæli sín tekin úr samhengi Fótbolti „Skil vel að KR-ingar séu með vatn í munninum yfir því sem koma skal“ Íslenski boltinn Víkingar gætu komið íslensku liði í Evrópudeildina Íslenski boltinn „Við ræðum það ekki við fjölmiðla“ Fótbolti Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Handbolti Fleiri fréttir Mourinho vill taka við Newcastle United „Hann varð pabbi og ég átti engan þátt í því“ Hetja United meiddist ekki við það að fagna markinu Rice tábrotinn en ætlar að spila á sunnudag Slot henti bæði Mourinho og Ancelotti úr efsta sætinu Sjáðu klúðrið sem stjóri Villa kallaði „stærstu mistök“ sem hann hefur séð Leikbann Kudus lengt í fimm leiki Bernardo Silva: Man City er á dimmum stað Amorim: Pep Guardiola er svo miklu betri en ég akkúrat núna Afar vandræðaleg samskipti Amorims og blaðamanns „Myndu halda að ég væri nýr Ferguson“ Íslandshrellir bjargaði Fulham með ótrúlegum hætti Meiddur Ödegaard gifti sig í leyni Skoraði stórglæsilegt mark og ætlar að horfa á það aftur og aftur Edu yfirgefur Arsenal Liverpool-stjarnan slapp með skrekkinn Skilur ekki hvernig Lisandro Martínez slapp við rauða spjaldið Dulin skilaboð frá Mo Salah eftir leik helgarinnar Kennir sjálfum sér um uppsögnina Fyrsta mark Fernandes dugði til stigs gegn Chelsea Willum skoraði sigurmarkið í fyrstu umferð FA bikarsins Tottenham skoraði fjögur mörk í seinni hálfleik eftir að hafa lent undir „Ég held að við getum orðið enn betri“ Jafnt eftir markaveislu í mikilvægum slag á fallsvæðinu Guðlaugur Victor horfði þrisvar á eftir boltanum í netið gegn Leeds Nottingham Forest í þriðja sæti og Southampton með fyrsta sigurinn Bournemouth slapp með sigur eftir stangarskot í uppbótartíma Toppsætið tryggt með tveimur mörkum á tveimur mínútum Of ungur fyrir Man. Utd að mati Hareide Svíinn sá um Arsenal með frábærum skalla Sjá meira