United fyrsta liðið til að halda fimm hundruð sinnum hreinu Siggeir Ævarsson skrifar 27. nóvember 2023 07:01 De Gea hélt marki sínu hreinu 190 sinnum í þeim 545 leikjum sem hann lék fyrir Manchester United. EPA-EFE/PETER POWELL Manchester United skráði sig í sögubækurnar í gær þegar liðið vann 0-3 sigur á Everton en þetta var í 500. sinn sem liðið heldur hreinu í ensku úrvalsdeildinni.
Var þetta í fimmta sinn sem Manchester United heldur hreinu í deildinni í þeim 13 leikjum sem Andre Onana ver mark liðsins en hann hefur þrátt fyrir það fengið á sig vænan skammt af gagnrýni í upphafi tímabils. Bróðurparturinn af þessari tölfræði tilheyrir tveimur fyrrum markvörðum United en David de Gea hélt hreinu í 147 leikjum af þeim 415 deildarleikjum þar sem hann stóð á milli stanganna hjá liðinu. Manchester United are the first side to keep 500 clean sheets in the Premier League. History makers. pic.twitter.com/HXUv5OFqqy— Squawka (@Squawka) November 26, 2023 Næstur á lista er svo Daninn geðþekki Peter Schmeichel sem hélt marki sínu hreinu í 112 deildarleikjum af þeim 292 sem hann lék í deildinni, sem þýðir að hann hélt hreinu í rúmlega 38 prósent af öllum deildarleikjum með United. Ekki amaleg tölfræði það. Þeir félagar eiga því samanlagt rúmlega helminginn af þessum 500 leikjum en fjölmargir markmenn hafa reynt að máta sig við markmannsstöðuna hjá United í gegnum árin, með misgóðum árangri. Eftirminnilegastur, ekki vegna þess hversu góður hann var, er mögulega Ítalinn Massimo Taibi, sem gárungarnir uppnefndu „blinda Feneyinginn“ eftir frammistöðu hans gegn Southampton hér um árið. Þetta reyndist næst síðasti leikur hans fyrir félagið og hann lék aðeins fjóra alls.
Enski boltinn Mest lesið Haaland sló met Agüero Enski boltinn Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Enski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn Falko farinn frá ÍR Körfubolti ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Fleiri fréttir Everton - Man. United | Hörkuslagur í Liverpool Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Sjá meira