Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Vakna klukkan hálf sjö sem er stundum nokkuð erfitt þegar dagarnir eru langir og miklu erfiðara þegar það er myrkur á morgnanna.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Ég vakna og skelli mér í æfingafötin og læðist bókstaflega út til að vekja ekki börnin og manninn minn sem er nú reyndar oft vaknaður. Ég er alltaf búin að gera allt klárt á kvöldin, bæði vinnudótið og íþróttadótið þannig að ég þurfi ekki að vera með einhver læti.
Ég er svo mætt klukkan sjö í Mjölni til Jóhanns með skemmtilegustu konum bæjarins.
Við reynum svo alltaf að ná svo smá tíma saman í gufunni til að kryfja málefni líðandi stunda en ég er svo mætt á skrifstofuna fyrir klukkan níu þar sem ég byrja daginn á daglegum morgunfundi með teyminu.“
Áttu þér eitthvað áhugamál sem þú telur líklegt að komi fólki á óvart?
„Ég á fullt af áhugamálum en svo er alltaf spurning hvernig maður forgangsraðar og hvað maður velur að eyða tímanum sínum í. Síðustu ár hef ég ekki gert mikið annað en að sinna vinnu og nota frítímann með fjölskyldunni. Mér finnst frábært að geta fylgt börnunum í þeirra áhugamálum og sjá þau vaxa.
Ég er með þrjú börn, tvo stráka og eina stelpu og eru þau öll á mismundani skólastigum, einn í menntaskóla, næsti í grunnskóla og stelpan okkar svo á leikskóla. Þau eru öll á fullu í íþróttum og ég sagði alltaf að ef ég myndi eignast þriðja barnið þá yrði það stelpa og hún færi í körfubolta. Hún er ekki ennþá komin í körfuna en yngri strákurinn minn byrjaði núna loksins í körfubolta. Ég var nefnilega í körfu sjálf og var bara nokkuð góð þó ég segi sjálf frá.
Ég var í yngri flokkunum í ÍR og unnum við alltaf allt og svo fór ég yfir í KR og vorum við líka mjög sigursælar þar og með frábært lið. Ég hlakka því mjög mikið til að geta fylgt stráknum mínum á körfuboltamót í vetur og vonandi fær stelpan mín áhugan líka.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Það eru mörg mjög spennandi verkefni sem við erum með í vinnslu. Við erum að búa til nýtt afl á smásölumarkaði og ætlum að láta til okkar taka. Ég hóf störf hjá Heimkaupum í byrjun sumar og samhliða breyttist rekstur félagsins talsvert þar sem Heimkaup keypti allar einingar sem sneru að verslunarrekstri frá Orkunni, en það eru 10-11, Extra og 3 verslanir, við Orkustöðvar ásamt Lyfjavali og Gló. Það eru svo eignarhlutir í Brauð & Co. og Clippers, sem rekur Sbarro.
Við erum að skoða hvernig við fáum sem mestan kraft úr okkar vörumerkjum og hvernig við vinnum sem best saman og eru að skipuleggja reksturinn með tilliti til þess.
Eins og komið hefur fram síðustu daga þá erum við einnig að undirbúa að koma með nýja nálgun á lágvöruverðsmarkaði á næsta ári.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
Ég byrja á daglegum stöðufundum til að við samstillum verkefni dagsins. Síðan er oft mikið um fundi en ég bóka sjálfa mig í dagatalinu í ákveðin verkefni svo ég hafi tíma til að sinna þeim verkefnum sem ég þarf að klára.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Fer allt of seint að sofa miðað við hvenær ég vakna. Markmiðið er alltaf að vera komin upp í rúm upp úr klukkan tíu og vera sofnuð um klukkan ellefu. Þetta er þó sjaldnast raunin og er ég yfirleitt að fara að sofa milli ellefu og tólf.“