Skytturnar töpuðu Lundúnaslagnum og eru úr leik Smári Jökull Jónsson skrifar 1. nóvember 2023 21:32 Leikmenn West Ham fagna marki Mohammed Kudus í kvöld. Vísir/Getty West Ham vann í kvöld góðan 3-1 sigur á nágrönnum sínum í Arsenal þegar liðin mættust í enska deildabikarnum í knattspyrnu.
Arsenal hefur verið að spila vel í ensku úrvalsdeildinni í upphafi tímabils og er sem stendur í öðru sæti deildarinnar og aðeins einu stigi á eftir Tottenham. West Ham er hins vegar um miðja deild og hefur sýnt misjafnar frammistöður. Í kvöld var frammistaðan hins vegar góð. West Ham komst í 1-0 í fyrri hálfleik eftir sjálfsmark Ben White og í síðari hálfleiknum skoruðu þeir Mohamed Kudus og Jarred Bowen tvö mörk á fyrsta stundarfjórðungnum og staðan orðin 3-0. Fyrirliði Skyttanna Martin Ödegaard skoraði sárabótamark úr víti í uppbótartíma en sigur West Ham var öruggur og þeir fara því áfram í næstu umferð enska deildabikarsins. Arsenal s last two visits to West Ham: 16th April 2023: Dropped two points in the bid for the PL title after leading 2-0 and missing a penalty 1st November 2023: Lose 3-1 to be knocked out the Carabao Cup in the Round of 16Mikel Arteta and co will be beginning to pic.twitter.com/U5oAU3XaUl— SPORTbible (@sportbible) November 1, 2023 Þrátt fyrir að hafa gert breytingar á liði sínu fyrir leikinn stillti Mikel Arteta upp sterku liði með Jorginho, Kai Havertz, Eddie Nketiah og Leandro Trossard alla í byrjunarliðinu ásamt ensku landsliðsmönnunum Aaron Ramsdale og Ben White. Declan Rice byrjaði á bekknum gegn sínum gömlu félögum. Hann kom inná í stöðunni 2-0 en gat lítið gert til að koma í veg fyrir tap sinna manna. David Moyes knattspyrnustjóri West Ham fer því án efa sáttur á koddann og kannski sérstaklega í því ljósi að Mohammed Kudus skoraði sitt annað mark fyrir félagið en hann var keyptur dýrum dómum frá Ajax í lok sumars.
Enski boltinn Mest lesið Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri Íslenski boltinn Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Enski boltinn KA - Breiðablik | KA þarf að spyrna af botninum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arsenal - Chelsea | Stórleikur á Emirates Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Sjá meira