Rafíþróttir

Dusty-maskínan rústaði Ten5ion

Dagur Lárusson skrifar
Leikmenn Dusty stigu varla feilspor í stórsigri sínum
Leikmenn Dusty stigu varla feilspor í stórsigri sínum

Leikmenn Dusty stigu varla feilspor er liðið fór illa með Ten5ion í leik liðanna í kvöld.

Leikurinn fór fram á Anubis þar sem NOCCO Dusty settu tóninn strax í skammbyssulotu þar sem þeir byrjuðu í sókn. Eftir sitt fyrsta tap á ofurlaugardegi síðustu umferðar sýndu Dusty að þeir væru hvergi nærri af baki dottnir og réðu þeir leiknum að öllu leiti.

Dusty-menn tóku fyrstu 7 loturnar með yfirburðum og virtust ætla missa sína fyrstu lotu til Ten5ion-manna í áttundu lotu en Dusty-maðurinn Ravle tók þá leikinn föstum tökum í stöðunni einn gegn þremur leikmönnum Ten5ion og stóð uppi með sigur í lotunni eftir að verja sprengjuna hetjulega á A-svæði Anubis.

Brauðfótavörn Ten5ion þurfti að bíða fram að síðustu lotu fyrri hálfleiks til að vinna sínu fyrstu lotu og sigur Dusty aðeins tímaspursmál í hálfleik.

Staðan í hálfleik: 1-14

Ten5ion tóku sigur í fyrstu tveimur lotum sínum í seinni hálfleik en sáu þó ekki til sólar eftir það og Dusty fundu sinn stærsta sigur á tímabilinu.

Lokatölur: 3-16

NOCCO Dusty koma sér þar með á topp töflunnar að nýju eftir að valta yfir leikmenn Ten5ion. Ten5ion sitja þó enn í öðru sæti deildarinnar með 10 stig.






×