Rafíþróttir

Ármann jafnar Þór að stigum með góðum sigri

Snorri Már Vagnsson skrifar
Ármann vann góðan sigur í kvöld.
Ármann vann góðan sigur í kvöld. Rafíþróttasamband Íslands

Ármann er nú með jafn mörg stig og Þór í 2. sæti Ljósleiðaradeildarinnar. Ármann vann góðan 16-14 sigur á Saga í kvöld.

Leikurinn fór fram í kjarnorkuverinu á Nuke þar sem Saga hófu leikinn í vörn. Fyrstu þrjár lotur leiksins fóru til leikmanna Saga í vörninni en Ármann hélt þó í við þá. Eftir sex lotur var staðan 4-2 fyrir Saga. Leikmenn Ármanns voru lengi að koma sér í gang en eftir erfiða byrjun virtust þeir loks hrökkva í gír og tóku lotu eftir lotu, staðan þá orðin 4-6.

Eftir að hafa byrjaði leikinn betur sáu Saga-menn ekki ljósið í þó nokkurn tíma þar sem Ármann komu sér í stöðuna 4-9 í lotunum þar á eftir. Saga náðu þó að krafsa tvær lotur til viðbótar áður en hálfleikur skall á.

Staðan í hálfleik: 6-9

Ármann hóf seinni hálfleikinn betur, en þeir tóku skammbyssulotuna. xZerq, leikmaður Saga fór þó á kostum í leiknum og hélt Saga inni í leiknum með flottri frammistöðu sinni í lotu 19 og kom stöðunni í 8-11. Kraken, leikmaður Ármanns var þó fljótur að finna sigurbraut Ármanns á ný þegar hann felldi þrjá leikmenn Saga á B-svæði Nuke. Staðan þá 9-12.

Leikurinn var í járnum framan af seinni hálfleik og hvorugt lið virtist hafa almennilega yfirhönd á honum. Saga komu sér almennilega í leikinn aftur í seinni hálfleik með því að sækja eina og eina lotu. Loks náðu þeir að jafna stöðuna í 26. lotu og staðan þá 13-13.

Við tóku æsispennandi lokalotur. Saga tóku forystuna í fyrsta sinn síðan í stöðunni 4-3 og staðan þá 14-13 en Ármann náði þá loksins að sigra lotu, 14-14. Guddi, nýjasti leikmaður Ármanns, sýndi stáltaugar í 29. lotu þegar hann var einn gegn tveimur leikmönnum Sögu en stóð einn eftir og aftengdi sprengjuna, 14-15. Leikmenn Saga voru þá með lítinn pening og þurftu að trúa á kraftaverk en allt kom fyrir ekki og Ármann tóku leikinn.

Lokatölur: 14-16

Ármann stilla sér upp við hlið Þórs í öðru sæti deildarinnar með 6 stig eftir vægast sagt æsispennandi lokalotur. Saga munu vera súrir með sitt, en á tímapunkti virtust þeir ætla að taka seríuna. Saga situr enn í 7. sæti deildarinnar með 2 stig.


Tengdar fréttir

Þór upp í annað sætið

Þór lagði FH í hörkuleik í Ljósleiðaradeildinni þar sem keppt er í hinum vinsæla tölvuleik Counter-Strike: Global Offensive. Lokatölur í kvöld 16-6 Þór í vil.






×