Búinn að eyða yfirlýsingunni þar sem hann gagnrýndi knattspyrnustjórann Aron Guðmundsson skrifar 13. september 2023 10:00 Jadon Sancho hefur komið sterkur til baka í síðustu leikjum eftir að hafa átt í erfiðleikum á tímabilinu. Vísir/Getty Jadon Sancho, sóknarmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United, hefur eytt færslu sinni á samfélagsmiðlum þar sem að hann gagnrýndi ummæli Erik ten Hag, knattspyrnustjóra Manchester United, eftir leik liðsins gegn Arsenal á dögunum.
Jadon Sancho var ekki valinn í leikmannahóp Manchester United gegn Arsenal og var Ten Hag spurður út í fjarveru hans á blaðamannafundi eftir leik. Þar tjáði Hollendingurinn blaðamönnum að Sancho hefði ekki staðið sig nógu vel á æfingum og hefði því ekki verið valinn í liðið. Sancho sendi frá sér yfirlýsingu á samfélagsmiðlum eftir blaðamannafundinn, yfirlýsingu sem hann hefur nú eytt, þar sem hann segir Erik ten Hag fara með rangt mál og hann sé gerður að blóraböggli og það ekki í fyrsta sinn: „Ekki trúa öllu sem þið lesið! Ég mun ekki leyfa fólki að fara með ósannindi. Ég hef staðið mig mjög vel á æfingum í vikunni. Ég tel að það séu aðrar ástæður fyrir þessu máli sem ég mun ekki fara nánar út í. Ég hef verið gerður að blóraböggli í langan tíma og það er ekki sanngjarnt!“ skrifaði Sancho í umræddri yfirlýsingu sem hefur nú verið eytt. Landsleikjahléið í öllum helstu deildum Evrópu er nú afstaðið og snúa leikmenn aftur til sinna félagsliða. Forvitnilegt verður að sjá og heyra á næstu dögum hvort Sancho og Ten Hag hafi grafið stríðsöxina.
Enski boltinn Mest lesið Víkingur - Fram | Toppslagur í Víkinni Íslenski boltinn Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Enski boltinn ÍA - KR | Erkifjendurnir mætast Íslenski boltinn Haaland sló met Agüero Enski boltinn Þór - FH | Hafnfirðingarnir fara norður á Akureyri Íslenski boltinn KA - Breiðablik | KA þarf að spyrna af botninum Íslenski boltinn Stjarnan - ÍBV | Eyjamenn kíkja í Garðabæinn Íslenski boltinn Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Fleiri fréttir Arsenal - Chelsea | Stórleikur á Emirates Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Sjá meira