Miðað við myndir síðustu vikna er bleikur vinsæll litur hjá kvenkyns brúðargestum í sumar. Þó er grænir, gylltir og blómamynstraðir kjólar einnig koma sterkir inn.
Skærbleikur og flottur
Viktoría Hermannsdóttir fjölmiðlakona klæddist skærbleikum síðermakjól í brúðkaupi Eddu Sifjar Guðbrandsdóttur og Steindórs Inga Snorrasonar. Myndin er tekin úr veislunni sem var hin glæsilegasta á Hótel Borg.
Bleikar pallíettur
Erna Hrund Hermannsdóttir, förðunarfræðingur og vörumerkjastjóri, klæddist fagurbleikum pallíettukjól í brúðkaupi Karitasar Maríu Lárusdóttur þjálfara og Gylfa Einarssonar, fyrrverandi knattspyrnumanns.
Umrætt brúðkaup var haldið á La Finca Resort hótelinu á Spáni.
Bleikur og appelsínugulur
Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir, fitnessdrottning og einkaþjálfari, þekkt sem Heiða Óla, var í fagurbleikum kjól með pífum kvöldið fyrir brúðkaupið hjá Karitas Maríu og Gylfa.
Í brúðkaupinu sjálfu klæddist hún svo appelsínugulum síðermakjól. Í myndafærslunni Heiðu hér að neðan má sjá vinkonur hennar sem klæddust ýmist grænum, kampavínslituðum eða bleikum kjólum.
Gylltur fjaðrakjóll
Kristbjörg Jónasdóttir athafnakona klæddist gylltum fjaðrakjól í ofangreindu brúðkaupi. Töff og öðruvísi.
Bleikfjólublá litablanda
Mari Järsk afrekshlaupakona birti mynd af sér og kærastanum, Nirði Lúðvíkssyni, verkefnastjóra hjá Össuri, í brúðkaupi sem haldið var á Hótel Geysi í júní. Kjóllinn sem Mari klæddist var í bleikfjólubláu mynstri með einni ermi. Nýtískulegur og smart.
Hannaði brúðarkjól vinkonu sinnar
Fatahönnuðurinn Andrea Magnúsdóttir, eigandi verslunarinnar Andrea by Andrea, klæddist fallegum kampavínslituðum, ermalausum síðkjól í brúðkaupi á Ítalíu á dögunum. Við kjólinn var hún í smart skærgrænum hælaskóm og hvítum jakka.
Andrea þykir með eindæmum smart. Hún hannaði til að mynda brúðarkjól brúðarinnar, Berglindar Arnardóttur, í umræddu brúðkaupi.
Fjólablátt flauel
Eva Ruza Miljevic, grínisti og skemmtikraftur, veislustýrði brúðkaupi Örnu Ýrar Jónsdóttur fegurðardrottningar og Vignis Þórs Bollasonar kírópraktors um liðna helgi. Eva klæddist stuttum, fjólumbláum síðermakjól úr flauelsefni.
Barbie-bleikur
Tanja Ýr Ástþórsdóttir, athafnakona og fyrrverandi fegurðardrottning, klæddist ljósbleikum síðkjól með bundna hlíra og opinn í bakið, í brúðkaupi Örnu Ýrar og Vignis Þórs liðna helgi.
Ljósbleikur og stuttur
Lína Birgitta Sigurðardóttir athafnakona var gestur í sama brúðkaupi og mætti í ljósbleikum stuttum kjól.
Stuttur og síðerma
Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Ína María Einarsdóttir fagnaði ástinni í Eyjafjarðarsveit á dögunum. Ína mætti í sumarlegum og mynstruðum síðerma kjól grænum og hvítum á lit.
Kremaður blómakjóll
Tara Sif Birgisdóttir, fasteignasali og dansari, klæddist kremuðum blómakjól um liðna helgi í brúðkaupi vinkonu sinnar, Svövu Guðrúnar Helgadóttur, og Hákons Hallfreðssonar. Brúðkaupið var haldið í Kjós í Hvalfirði í dásamlegu veðri líkt og sjá má í myndafærslu Töru.
Límónugrænn silkikjóll með axlapúðum
Fanney Ingvarsdóttir, samfélagsmiðlafulltrúi Bioeffect, birti myndir úr sama brúðkaupi sem virtist hið glæsilegsta.
Fanney klæddist stuttum silkikjól í límónugrænum lit frá merkinu The Garment og fæst meðal annars í versluninni Andrá.
Sægrænn og sumarlegur
Eva Laufey Kjaran fagnaði ástinni hjá vinafólki í London á dögunum. Í veislunni klæddist Eva Laufey sægrænum síðkjól með gylltu mynstri.
Síðerma og stuttir kjólar áberandi
Aldís Amah Hamilton leikkona mætti í glæsilegum ljósbláum kjól í brúðkaup systur sinnar í lok júní. Kjóllinn er víður og stuttur í sniðinu með síðum ermum en slík snið hafa verið áberandi í sumar.
Blómakjóll
Sylvía Haukdal kökuskreytingakona birti mynd af sér á dögunum, prúðbúin á leið í brúðkaup. Á myndinni klæddist hún fallegum blómakjól, tekinn saman í mittið.