Tónlist

Skiptu þrisvar um erindi

Máni Snær Þorláksson skrifar
Ingi Þór og Króli gáfu út lag saman á dögunum.
Ingi Þór og Króli gáfu út lag saman á dögunum. Axel Magnús/Hulda Margrét

Ingi Þór Þórhallsson gaf á dögunum út sitt annað lag, sem heitir Þú. Lagið gaf hann út í samstarfi við Kristinn Óla Haraldsson, eða Króla eins og hann er gjarnan kallaður.

Þeir Ingi Þór og Króli kynntust í gegnum leiklistina árið 2021. Þá léku þeir saman í söngleiknum Hlið við hlið, sem byggður var á lögum eftir Friðrik Dór, í leikstjórn Höskuldar Þórs Jónssonar. Þessa stundina eru þeir báðir í BA námi í leiklist í Listaháskóla Íslands.

Ingi Þór og Króli léku saman í Hlið við hlið. Hér má sjá þá ásamt hinum í leikhópnum, Jóni Svavari, Kolbeini Sveinssyni, Berglindi Öldu, Helga Val og Öglu Bríeti.Elín Björg Guðmundsdóttir

Tónlistin hefur lengi verið áhugamál hjá Inga Þór og ákváðu þeir Króli að gefa út lag saman. Ingi Þór segir að þegar á hólminn var komið hafi það reynst erfitt að velja lokaútgáfu af erindinu hjá Króla. Þeir hafi þrisvar sinnum skipt um erindi. 

Það er þó ljóst að þeir náðu að komast að niðurstöðu og úr varð lagið Þú sem hægt er að hlusta á hér fyrir neðan. 

Lagið er samið af Inga Þór og Snorra Beck en textinn er eftir Inga Þór og Króla. Á trompet spilar Jakob van Oosterhout. Á döfinni hjá Inga Þór er svo plata sem á að koma út seinna í sumar. 

Þeir félagar mættu í Brennsluna í morgun þar sem þeir spjölluðu um lagið og fleira.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.