Alvotech rýkur upp eftir fréttir af 8,5 milljarða króna greiðslu
![Greiðslur til Alvotech geta numið allt að 320 milljónum evra, jafnvirði 49 milljarða króna, en heildarupphæðin mun velta á því hvort tilteknum áföngum verði náð.](https://www.visir.is/i/AFEFE19886AEA337ED0C4815525B68CFBF725247F32F6521101AE5D27D363E57_713x0.jpg)
Alvotech fær fyrirframgreiðslu að fjárhæð 56 milljónir evra, jafnvirði um 8,5 milljarða króna, frá Advanz Pharma, alþjóðlegs lyfjafyrirtækis með höfuðstöðvar í Bretlandi, vegna samstarfssamnings sem tilkynnt var um í dag. Hlutabréfaverð íslenska líftæknifyrirtækisins hefur hækkað um 7,6 prósent í 200 milljóna króna viðskiptum það sem af er degi.