Silungur frá A til Ö námskeið hjá SVAK Karl Lúðvíksson skrifar 15. maí 2023 11:30 Það er fátt sem getur hjálpað þér jafn mikið og jafn hratt að ná góðum tökum á silungsveiði eins og að fara á námskeið hjá sérfræðingum.
Það eru margir sem hafa náð þeirri stöðu að vera með réttu kallaðir sérfræðingar í silungsveiði en þeirri nafnbót fylgir ítarleg nálgun á bráðinni sem og ástundun sem telur ekki dögum haldur fleiri vikum við bakkann á sumrin. Það er síðan ánægjulegt þegar sumir af þessum bestu silungsveiðimönnum landsins skella í námskeið. Ólafur Ágúst Haraldsson og Hrafn Ágústsson (Caddisbræður) og Ólafur Tómas Guðbjartsson (Dagbók urriða) hafa verið með námskeið á höfuðborgarsvæðinu í vetur og í vor en núna halda þeir norður yfir heiðar í samstarfti við Stangaveiðifélag Akureyrar og skella í námskeið næstu helgi. Hér fyrir neðan er tilkynning frá SVAK. Veiðivísir mælir klárlega með þessu! Ágætu félagsmenn ! Fyrirhugað er að halda þetta námskeið fyrir norðan 20 maí ef næg þátttaka fæst. (Lágmark 20 manns). Ennþá laus pláss. Nánar hér fyrir neðan: Silungur frá A - Ö Þetta skemmtilega námskeið sem er á fyrirlestraformi gefur áhugaverða innsýn á mörg spennandi sjónarhorn silungsveiða og hentar bæði byrjendum sem lengra komnum. Kennarar eru: Ólafur Ágúst Haraldsson og Hrafn Ágústsson (Caddisbræður) og Ólafur Tómas Guðbjartsson (Dagbók urriða). Námskeiðsdagur 20.maí kl 13-18 í Hamri félagsheimili Þórs á Akureyri Almennt verð: 14.900 kr, félagsmenn SVAK 11.000 kr. Skráning á svak@svak .is með nafni,kennitölu og símanúmeri. Lágmarksfjöldi á námskeiðið er 20 manns.
Stangveiði Mest lesið Laxveiðin byrjar á laugardaginn Veiði Gengið með Langá og Haukadalsá Veiði Skagaheiðin farin að gefa vel Veiði Sífellt fleiri konur við árbakkann Veiði Slæm umgengni við veiðivötn á Arnarvatnsheiði Veiði Náði 12 punda urriða í Kleifarvatni Veiði Rjúpnahelgi framundan Veiði Haukadalsvatn kraumaði að sjóbleikju Veiði Gamla veiðidótið ekki alltaf verðlaust en yfirleitt Veiði Hliðarvatns dagurinn sunnudaginn 11.júní Veiði