Ætlaði ekki að semja ástarlag
„Ég samdi lagið í Kaupmannahöfn þar sem ég var búsett í tvö ár. Lagið varð til í svefnherberginu mínu á litlu midi hljómborði í miðju Covid þar sem vinnan færðist heim.
Ég man skýrt eftir því að akkúrat þennan dag langaði mig ekki að semja ástarlag og ætlaði að semja um eitthvað allt annað,“
segir Silja Rós og bætir við:
„Textinn byrjaði að myndast og ég náði að forðast ástina þar til ég lenti í rímna flækju og allt í einu kom setning sem leiðbeindi laginu beint aftur á braut ástarinnar. Ég dvaldi ekkert lengi við það og hugsaði bara, jæja þá er þetta ástarlag og leyfði því bara að flæða náttúrulega.“
Mikil gjöf að vinna með kærastanum
Silja vann lagið með kærastanum sínum, Magnúsi Orra.
„Það er mikil gjöf að geta starfað með kærastanum sínum og samstarfið hefur hingað til gengið mjög vel þrátt fyrir að við séum bæði með mjög sterkar skoðanir hvað varðar útsetningar og erum ekkert alltaf sammála.
Þegar við byrjuðum að taka upp Share U settum við okkur eina reglu, að við myndum hafa gaman að öllu ferlinu og bara vinna í laginu þegar við værum bæði með góða orku til að skapa. Við settum okkur enga tímapressu og eyddum miklum tíma í að dúlla okkur við raddútsetningar. Þetta var ótrúlega skemmtilegt ferli og mér þykir þess vegna enn vænna um lagið.“
Í spilaranum hér fyrir neðan má heyra lagið Share U:
Ellie Goulding og Calvin Harris sitja staðföst í fyrsta sæti Íslenska listans á FM með danslagið Miracle. Daniil og Friðrik Dór fylgja fast á eftir með lagið Aleinn og Eurovision stjarnan Diljá situr í þriðja sætinu með lagið Power.
Íslenski listinn er fluttur alla laugardaga á milli klukkan 14:00 og 16:00.
Lög Íslenska listans:
Íslenski listinn á Spotify: