Horizon Forbidden West: Burning Shores - Hin fínasta viðbót við góðan leik Samúel Karl Ólason skrifar 5. maí 2023 08:32 Aloy hefur engu gleymt. Sony Horizon Forbidden West er einhver fallegasti leikur samtímans og Burning Shores, nýr aukapakki leiksins, skemmir þar ekki fyrir. Aloy þarf núna að elta einn af hinum ódauðlegu Zeniths til rústa Los Angeles og bjarga þar heiminum, í bili, enn eina ferðina.
Horizon leikirnir gerast í söguheimi þar sem mannkynið var þurrkað út af vélmennum og gervigreind. Í stuttu máli sagt, þá leiddu miklar tækniframfarir til þess að óstöðvandi hernaðargervigreind eyddi öllu lífi á jörðinni. Faro-plágan, eins og hún var kölluð, notaði lífræn efni til að búa til fleiri vélmenni gegn mönnum og má því segja að menn, dýr og plöntur hafi verið bókstafleg fæða plágunnar. Gáfaðasta fólk heimsins náði þó að tryggja að lífið myndi snúa aftur til jarðarinnar. Flug skiptir enn miklu máli og er skemmtilegt.Sony Frumbyggjar framtíðarinnar eiga þó erfitt þar sem vélmennarisaeðlur og vondir drullusokkar herja reglulega á þá. Þetta hljómar fáránlega við fyrstu sín en óhætt er að segja að það borgi sig að kafa í sögu Aloy, hetju leikjanna. Sjá einnig: Í meistaraflokki opinna heima Eftir að hafa bjargað heiminum nokkrum sinnum þarf Aloy að gera það enn einu sinni og ferðast til nýs svæðis á meginlandi Bandaríkjanna. Aloy fær fregnir af því að vondur maður úr fortíðinni hafi flúið frá lokabardaga Forbidden West og eltir hún hann til að koma í veg fyrir að hann valdi frekari usla. Þá mætir hún til Los Angeles borgar í Kaliforníu. Los Angeles er nokkuð stórt kort í leiknum, um þriðjungur af korti Forbidden West, en þó það sé rosalega flott, þá er mun minna um að vera þar. Annar galli á aukapakkanum er að saga hans er heldur stutt, þó hún sé í takt við Frozen North, aukapakka fyrsta leiksins í seríunni um framtíðar-tæknifrumbyggjan Aloy. Los Angeles lítur ekkert allt of vel út í söguheimi Horizon.Sony Lítið hægt að kvarta Fyrir utan það að hinar brennandi strendur geta verið svolítið tómlegar, þá hef ég yfir nánast engu að kvarta. Bardagakerfið er enn frábært og Aloy rekst á nokkra nýja óvini í þessum leik. Þar á meðal einn sem er mjög svo stór. Aloy finnur líka nýja vini, suma betri en aðra. Svo ég taki það samt aftur fram, þá er þessi leikur fáránlega fallegur og það er merkilega skemmtilegt að leika sér með myndatökukerfi leiksins. Ný vélmenni líta dagsins ljós. Þau eru óþolandi.Sony Bardagakerfið er sömuleiðis enn mjög skemmtilegt. Maður þarf að finna veikleika vélmenna og nýta sér þá til að rústa þeim með fjölbreyttum vopnum leiksins. Ég hef samt einhvern veginn aldrei náð að venja mig á að nota önnur vopn en boga. Ég hef náð að sníða mína Aloy mjög vel að því að granda vélmennum með bogum, en það er auðvitað hægt að gera hlutina öðruvísi. Til dæmis með því að gera Aloy betri í því að berja vélmenni með priki og rústa þeim þannig eða kasta sprengjum í þau. Það er allt hægt í þessum heimi. Aloy kynnist nýju fólki í Burning Shores. Eins og svo oft áður eru þau flest drullusokkar.Sony Samantekt-ish Það helsta sem segja má um Burning Shores er að hann virkaði sem skyldi þegar hann kom út. Þó þetta sé bara aukapakki, þá er það ekki sjálfgefið þessa dagana að leikir séu fullkláraðir þegar þeir eru gefnir út. Annars er vandræðalega lítið um aukapakkann að segja sem ekki hefur verið sagt áður. Forbidden West er þrusuleikur og Burning Shores er hinn fínasti aukapakki, þó hann gæti verið meira seðjandi. Hann virkar og það vel.
Leikjavísir Leikjadómar Mest lesið Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Landaði hlutverki í íslensku Hallmark-myndinni á hálftíma Bíó og sjónvarp Lively í hart: „Þú veist að við getum grafið hvern sem er“ Bíó og sjónvarp „Ég var alltaf systir bræðranna sem dóu, dóttir bæjarstjórans eða dóttir ráðherrans“ Áskorun Frægir fjölguðu sér árið 2024 Lífið Garðar málari og kvæntur yngstu ömmu landsins Lífið Krakkatían: Jólasveinar, stjörnustríð og þjóðsögur Lífið Fékk Sigurbjörn Árna til að lýsa óhappi í vinnunni Lífið Blaðasnápurinn Stefán Einar fórnar kampavínskóngstitlinum Lífið Fréttatía vikunnar: Lýðheilsa, ísbúð og álag Lífið Fleiri fréttir Svik og prettir í jólaþætti GameTíví Stiklusúpa: Allt það helsta sem kynnt var á Game awards Aldís Amah tilnefnd til BAFTA-tölvuleikjaverðlaunanna Stalker 2: Töluvert gallaður en æðislegur leikur Feluleikur hjá GameTíví GameTíví í búðarleik GameTíví: Skoða gjörbreyttan Warzone Dragon Age Veilguard: Fimmtán ára ævintýri lýkur PlayStation 5 Pro: Eina leiðin til að spila, ef þú tímir því Sverrir Bergmann snýr aftur í GameTíví GameTíví: Berjast gegn hjörðum uppvakninga Horizon Zero Dawn uppfærður: Besta tækifærið til að stökkva í sögu Aloy Sjá meira