Ennþá veiðast regnboga silungar í Minnivallalæk Karl Lúðvíksson skrifar 14. apríl 2023 08:35 Davíð Lúther með ragnbogasilung úr Minnivallalæk Það urðu margir ansi hissa þegar það veiddist regnbogasilungur í Minnivallalæk í opnun og var talið að um einstaka tilfelli væri að ræða.
Það virðist vera eitthvað meira en skrítið í gangi því það eru ennþá að veiðast regnbogasilungar í Minnivallalæk sem hingað til hefur verið þekktastur fyrir að vera ein mest krefjandi en að sama skapi skemmtileg urriðaá. Það er ekki vitað hvaðan þessi regnbogasilungur kemur en ekkert eldi á regnboga er við ána og þess vegna ekki um sleppifisk að ræða. Eins er silungurinn heill á uggum og ber engin meri þess að vera úr eldi svo þetta mál er bara að verða skrítnara með hverjum deginum. Veiðimenn sem veiða slíka fiska í Minnivallalæk eru vinsamlegast beðnir um að drepa þennan fisk enda er hann ekki auðfúsugestur á svæðinu. Regnbogasilungur er einstaklega öflug hrognaæta og mikill mathákur á seiði annara stofna svo hann gæti mjög auðveldlega gert nokkurn skaða á einstökum stofni urriðans í þessari fallegu á.
Stangveiði Mest lesið Haustbragur á veiðitölum vikunnar Veiði Kastkeppni á skemmtileikum Veiði 6 punda bleikja úr Úlfljótsvatni Veiði Mikið sótt í 2-3 stanga árnar Veiði Besti tíminn laus í Soginu Veiði Hvað á rjúpa að hanga lengi? Veiði Nýjasti þátturinn af Árbakkanum Veiði Elliðavatn opnar á fimmtudag Veiði Gæsaveiðin fór vel af stað Veiði Veiðimenn þurfa að búa sig vel næstu daga Veiði