Unnið einn leik í vetur en geta farið í Olís-deildina Valur Páll Eiríksson skrifar 12. apríl 2023 12:00 Handboltalið Kórdrengja getur farið upp þrátt fyrir slakan árangur í vetur. Kórdrengir Kórdrengir unnu aðeins einn leik í Grill66-deild karla í handbolta í vetur og enduðu í neðsta sæti deildarinnar. Engu að síður hafa þeir möguleika á því að spila í efstu deild að ári.
Eini sigur Kórdrengja í vetur kom gegn U-liði Vals að Hlíðarenda þann 25. febrúar, sem þeir unnu með minnsta mun, 27-26. Hinum 17 leikjum sínum töpuðu þeir, með 150 mörk í mínus í þeim leikjum. Kórdrengir eru hins vegar aðeins eitt fimm liða í deildinni sem ekki eru U-lið, ungmennalið félaga í efstu deild. U-lið Vals, KA, Hauka, Fram og Selfoss eru í deildinni ásamt HK, Víkingi, Fjölni, Þór og liði Kórdrengja. Fyrirkomulaginu á deildinni er þannig háttað að HK, sem vann deildina, fer upp í Olís-deildina. Næstu fjögur lið sem mega spila í efstu deild spila svo í umspili um hitt sætið í deild þeirra bestu. U-liðin mega ekki fara upp um deild þar sem þeir mega ekki leika í sömu deild og aðallið síns félags. Því munu Kórdrengir mæta Víkingi í undanúrslitum umspilsins á meðan Fjölnir, sem lenti í fjórða sæti deildarinnar, mætir Þór, sem var í næstneðsta sæti. Vilji svo ólíklega til að Kórdrengir leggi Víking að velli í undanúrslitum og svo annað hvort Fjölni eða Þór í úrslitum munu þeir því spila í Olís-deildinni að ári, þrátt fyrir að hafa unnið aðeins einn leik í deildarkeppninni.
Olís-deild karla Kórdrengir Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað Sjá meira