Martin spilaði í fyrsta sinn í tæpt ár í sigri Valencia Smári Jökull Jónsson skrifar 12. mars 2023 13:34 Martin í leik með Valencia á síðasta tímabili. Vísir/Getty Martin Hermannsson lék sinn fyrsta leik fyrir Valencia síðan í maí á síðasta ári þegar liðið vann sigur á Girona í spænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik í dag.
Martin sleit krossband í maí á síðasta ári í leik með Valencia og hefur verið frá keppni síðan þá. Hann var í leikmannahópi liðsins gegn Real Madrid í Evrópukeppninni í vikunni en kom þá ekkert við sögu. Hann fékk hins vegar tækifæri í dag þegar Valencia mætti Girona á útivelli. Martin lék í rúmar tólf mínútur í 79-75 sigri Valencia. Martin skoraði sína fyrstu körfu í tæpt ár þegar hann setti niður þriggja stiga skot í upphafi annars leikhluta en hann nýtti annað af tveimur þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Martin gaf þar að auki fjórar stoðsendingar. Valencia hafði yfirhöndina í fyrri hálfleik í dag og leiddi með fjórtán stigum í hálfleik, staðan þá 46-32. Í þriðja leikhluta bitu heimamenn frá sér og náðu að minnka muninn en Valencia skoraði aðeins níu stig í leikhlutanum. Þeir náðu hins vegar vopnum sínum á ný í lokafjórðungnum. Valencia vann að lokum 79-75 sigur og eru í 8. sæti deildarinnar með 24 stig en áttunda sætið er það síðasta sem gefur sæti í úrslitakeppninni. Það eru heldur betur frábærar fréttir að Martin sé kominn á ferðina á ný og hann fær vafalaust fleiri tækifæri með liði Valencia á næstu vikum.
Spænski körfuboltinn Mest lesið Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Ferguson saknar fótboltans Enski boltinn Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Handbolti Heimsmeistaranum refsað fyrir notkun blótsyrðis Formúla 1 Dagskráin í dag: Íslendingaslagur af bestu gerð Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira