„Sóknarleikurinn er skammarlegur fyrir lið eins og okkur“ Smári Jökull Jónsson skrifar 8. mars 2023 21:07 Aron Pálmarsson var ómyrkur í máli eftir leikinn í kvöld. Vísir/Vilhelm Aron Pálmarsson fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik var ómyrkur í máli eftir tap gegn Tékkum í Brno í kvöld. Hann sagði frammistöðu liðsins hafa verið skelfilega. „
Bara skelfilegt, skelfileg frammistaða hjá okkur. Uppleggið fannst mér fínt og það sem við vorum að reyna að gera fannst mér allt í lagi þegar við vorum að reyna að teygja á þeim. Við framkvæmum hlutina bara eins og einhverjir byrjendur,“ sagði Aron í viðtali sem Gunnar Birgisson tók við hann eftir leik og birtist á RÚV. „Þegar við náum að gera það allt í lagi og komast í gegn þá látum við hann verja frá okkur trekk í trekk. Sóknarleikurinn er skammarlegur fyrir lið eins og okkur,“ bætti Aron við en þetta var fyrsti leikur Íslands eftir að Guðmundur Guðmundsson hætti sem landsliðsþjálfari. Fyrir heimsmeistaramótið í Svíþjóð og Póllandi í janúar voru margir sem spáðu Íslandi góðu gengi. Aron sagði ljóst að liðið væri ekki á þeim stað sem margir héldu að það væri fyrir HM. „Nei, ekki í dag. Við erum bara ekki þar í dag og það er augljóst. Við skorum sautján mörk í einum handboltaleik og við erum ekki betri en það nákvæmlega núna. Gæðin í liðinu eru þannig en við erum ekki að spila þannig.“ „Það sem við erum að gera á vellinum sóknarlega er okkur til skammar. Við erum með menn að toppa á sínum ferli, ég með mína reynslu er að gera barnaleg mistök trekk í trekk. Þetta er eitthvað sem við þurfum alvarlega að skoða.“
Landslið karla í handbolta Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira