HSÍ ekki enn haft samband við neinn en þjálfaraleitin fer á fullt eftir Tékkaleikina Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. mars 2023 11:27 Guðmundur B. Ólafsson er formaður Handknattleikssambands Íslands. vísir/egill HSÍ flýtir sér hægt í ráðningu á næsta þjálfara karlalandsliðsins í handbolta en vill vera búið að ganga frá þeim málum í haust.
Guðmundur Guðmundsson lét af störfum sem landsliðsþjálfari í síðustu viku eftir fimm ára starf. Ákveðið hefur verið að Gunnar Magnússon og Ágúst Þór Jóhannsson stýri íslenska liðinu í leikjunum fjórum sem það á eftir í undankeppni EM 2024. Ísland mætir Tékklandi heima og að heiman í þessum mánuði og svo Ísrael úti og Eistlandi heima í apríl. „Við erum bara að byrja að vinna í því. Ég hugsa að við setjum meiri kraft í þetta þegar Tékkaleikirnir eru búnir. Þá förum við á fullt. Við erum að greina hvaða þjálfara við þurfum og hver markmiðin okkar eru. Ég býst við að þetta fari af stað í mars-mánuði að skoða alla möguleika,“ sagði Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, í samtali við Vísi í dag. Hann segir að HSÍ sé ekki enn búið að hafa samband við neinn þjálfara. En hefur HSÍ gefið sér einhvern tímaramma utan um það hvenær sambandið vill vera búið að ganga frá ráðningu nýs landsliðsþjálfara? „Við teljum okkur hafa góðan tímaramma fram á haustið. Það eru verkefni næst í október/nóvember. Við þurfum að vera búin að klára þetta fyrir þann tíma. Við þurfum að vera komin með mann þá. Það er síðasti undirbúningurinn fyrir EM í janúar,“ svaraði Guðmundur.
Landslið karla í handbolta EM 2024 í Þýskalandi Mest lesið Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Enski boltinn „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Landsliðsmiðverðirnir skiptu báðir um lið í dag Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn Urðu að sofa úti á svölum á hótelherberginu Sport „Hvað viljið þið að Jude Bellingham segi?“ Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira