Gauti meiddist með finnska landsliðinu og missir af leiknum í kvöld Sindri Sverrisson skrifar 6. febrúar 2023 16:00 Þorsteinn Gauti Hjálmarsson hefur verið óheppinn með meiðsli í vetur. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Óvissa ríkir um það hvenær Þorsteinn Gauti Hjálmarsson, lykilmaður í handboltaliði Fram, getur spilað með liðinu í Olís-deildinni eftir að hann meiddist illa í ökkla.
Einar Jónsson þjálfari Fram sagði frá þessu í nýjasta þætti Handkastsins þar sem hann greindi frá því að Þorsteinn Gauti hefði meiðst í leik með finnska landsliðinu. Þorsteinn Gauti, sem á finnska ömmu, var valinn í landslið Finnlands í fyrsta sinn fyrir æfingamót í Lettlandi í byrjun janúar en meiddist þar. Framarar spila gegn Aftureldingu í Úlfarsárdal í kvöld, sinn fyrsta leik í tæpa tvo mánuði, og freista þess að byrja seinni hluta tímabilsins af sama krafti og þann fyrri, en verða án Þorsteins Gauta. „Gauti verður ekki með [í kvöld]. Hann var eftirminnilega kallaður inn í finnska landsliðið og fór þangað í æfinga- og keppnisferð, og slasaði sig nokkuð illa á ökkla í leik með þeim. Hann hefur ekkert æft með okkur og það er algjörlega óljóst hvenær hann kemur inn í þetta,“ segir Einar sem gat ekki nýtt krafta Þorsteins Gauta sem skyldi fyrir áramót, vegna meiðsla í olnboga. „Hann var orðinn góður og hefði getað spilað með okkur af 100% krafti í janúar. Hann var í toppstandi þegar hann fór út en var óheppinn að lenda á ristinni á öðrum leikmanni svo ökklinn beyglaðist helvíti illa. Það er bara eins og gengur og gerist í þessu,“ segir Einar sem veit ekki hvenær Þorsteinn Gauti getur spilað á nýjan leik. „Það eru komnar fjórar vikur síðan þetta gerðist og hann verður alla vega ekki með [í kvöld]. Við tökum stöðuna viku fyrir viku og þetta verður bara að koma í ljós.“ Hægt er að hlusta á nýjasta þátt Handkastsins hér að neðan en viðtalið við Einar er í lok þáttar.
Olís-deild karla Fram Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira