Alfreð í leik um fimmta sæti eftir æsispennu Sindri Sverrisson skrifar 27. janúar 2023 16:30 Johannes Golla sækir að vörn Egypta en hann skoraði úr öllum sex skotum sínum. EPA-EFE/Tamas Kovacs Alfreð Gíslason stýrði Þýskalandi til sigurs í framlengdum leik gegn Egyptalandi á HM í handbolta í dag, 35-34. Þar með er ljóst að Þjóðverjar spila við sigurliðið úr leik Noregs og Ungverjalands um 5. sæti mótsins.
Egyptar spila aftur á móti um 7. sæti við tapliðið úr leik Noregs og Ungverjalands, á sunnudaginn í aðdraganda leikjanna um brons- og gullverðlaun mótsins. Þýskaland þurfti að hafa meira fyrir sigrinum en útlit var fyrir lengi vel, því liðið var 28-21 yfir um miðjan seinni hálfleik. Þá byrjuðu Egyptar hins vegar að éta upp forskotið býsna hratt og jafna metin í 30-30 þegar enn voru þrjár mínútur eftir. Hvorugt liðið skoraði á þeim tíma en Ali Mohamed, sem ásamt Yehia Elderaa var markahæstur hjá Egyptum með sjö mörk í dag, átti skot í þverslá á síðustu stundu. Því varð að framlengja. Eftir fyrri fimm mínúturnar var enn jafnt, 33-33, og Þjóðverjum tókst svo loks að kreista fram eins marks sigur. Juri Knorr var markahæstur Þýskalands með sjö mörk en þeir Johannes Golla og Julian Köster nýttu öll skot sín og skoruðu sex mörk hvor. Noregur og Ungverjaland mætast klukkan 17 í dag og eftir þann leik verður ljóst hvaða liði Þýskaland mætir í Stokkhólmi á sunnudaginn, og hvaða liði Egyptaland mætir á sama stað.
HM 2023 í handbolta Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Heimamenn í Kanada björguðu stigi í lokin Fótbolti Segir að franska liðið sé betra en það sem vann HM 2018 Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira