Danir völtuðu yfir Ungverja Smári Jökull Jónsson skrifar 25. janúar 2023 18:46 Simon Pytlick brýst hér í gegnum vörn Ungverja í leiknum í dag. Vísir/EPA Danir eru komnir áfram í undanúrslit heimsmeistaramótsins í handknattleik eftir sigur á Ungverjum í 8-liða úrslitum í dag. Ungverjar sáu aldrei til sólar og sigur Dana var gríðarlega sannfærandi.
Danir og Ungverjar mættust í Tele 2 Arena í Stokkhólmi en Ungverjar fóru áfram úr milliriðli Íslendinga eins og frægt er orðið. Skemmst er frá því að segja að Danir unnu öruggan sigur í leiknum í dag og sáu Ungverjar aldrei til sólar. Danir náðu frumkvæðinu strax í upphafi og leiddu með níu marka mun í hálfleik, 21-12, eftir að hafa skorað fjögur síðustu mörk fyrri hálfleiks. Þennan mun náðu Ungverjar vitaskuld aldrei að brúa í síðari hálfleiknum gegn geysisterku liði Dana. Danska liðið bætti í og vann að lokum sautján marka stórsigur, lokatölur 40-23. Mathias Gidsel skoraði níu mörk fyrir Dani í kvöld og Simon Pytlick skoraði átta. Mate Lekai og Richard Bodo skoruðu sex mörk hvor fyrir Ungverja. Leikur Noregs og Spánar er enn í gangi en þar þurfti að grípa til framlengingar. Í kvöld mætast síðan Frakkland og Þýskaland annars vegar og Svíþjóð og Egyptalands hins vegar í síðari leikjum 8-liða úrslitanna.
HM 2023 í handbolta Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Lærissveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Fótbolti Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira