Stjóri Benfica sakar Chelsea um vanvirðingu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. janúar 2023 16:01 Enzo Fernández er afar eftirsóttur. getty/Diogo Cardoso Roger Schmidt, knattspyrnustjóri Benfica, hefur gagnrýnt Chelsea fyrir að falast eftir argentínska heimsmeistaranum Enzo Fernández og sakar enska félagið um vanvirðingu.
Fernández var valinn besti ungi leikmaður HM í Katar þar sem Argentína stóð uppi sem sigurvegari. Þessi 21 árs miðjumaður er afar eftirsóttur og Chelsea þykir líklegt til að krækja í kappann sem er með 106 milljóna punda riftunarákvæði í samningi sínum við Benfica. Schmidt er þó ekki sáttur með hvernig Chelsea hefur borið sig að í tilraunum sínum til að klófesta Fernández. „Það sem félagið sem vill fá Enzo er að gera er vanvirðing gagnvart okkur öllum, gagnvart Benfica, og ég get ekki samþykkt það,“ sagði Schmidt. „Að gera leikmanninn brjálaðan og þykjast svo geta borgað riftunarákvæðið og vilja svo semja er ekki í anda góðra samskipta milli félaga sem vilja kannski ræða um leikmann.“ Schmidt segir að afstaða Benfica í þessu máli sé mjög skýr en gerir sér þó grein fyrir því að Fernández gæti yfirgefið félagið áður en langt um líður. „Við viljum ekki selja Enzo. Enginn hjá félaginu vill það. Allir vita af riftunarákvæðinu og ef hann vill fara og einhver borgar þessa upphæð getum við ekki meinað honum að fara og kannski missum við leikmanninn.“ Benfica keypti Fernández frá River Plate síðasta sumar. Hann hefur leikið 25 leiki með liðinu á þessu tímabili og skorað tvö mörk.
Enski boltinn Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Falko farinn frá ÍR Körfubolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Framarar skoruðu 38 mörk og unnu Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti Arbeloa í brasi Enski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira