Lag dagsins í Jóladagatali Vísis er Too Late með stórsöngkonunni Þórunni Antoníu. Óhætt er að segja að lagið sé það lang stærsta sem komið hefur úr smiðju Þórunnar og þrátt fyrir að tíu ár séu liðin frá útgáfu þess nýtur það ennþá mikilla vinsælda.
Davíð Berndsen og Hermigervill unnu lagið með Þórunni Antoníu en leikstjóri myndbandsins er Ágúst Bent.
Raunar hafði Hermigervill hugsað lagahugmyndina sem grunn að lagi fyrir Berndsen, og hafi verið svo seinn að senda á hann demó að hann nefndi skrána Too Late. Þórunn Antonía hafi svo samið sönglínuna og textann út frá því. Þessu greindi hann frá á Twitter í haust.
Holy god damn ég var að finna í gömlum möppum upprunalega demoið frá 2011 !!!
— Hermigervill (@hermigervill) November 2, 2022
Berndsendemo - Too Late WIP1 https://t.co/nLVwmG1BK1 pic.twitter.com/hT0iznR7Zo