Ásgeir Örn tekur við Haukum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. nóvember 2022 11:51 Ásgeir Örn Hallgrímsson ásamt Aroni Kristjánssyni og Þorkeli Magnússyni. haukar Ásgeir Örn Hallgrímsson hefur verið ráðinn þjálfari Hauka í Olís-deild karla til 2025. Hann tekur við liðinu af Rúnari Sigtryggssyni.
Í gær var greint frá því að Rúnar hefði samið við þýska úrvalsdeildarliðið Leipzig sem Viggó Kristjánsson leikur með. Rúnar tekur strax til starfa og stýrir Leipzig í fyrsta sinn gegn Wetzlar annað kvöld. Haukar hafa fundið eftirmann Rúnars en það er silfurdrengurinn Ásgeir Örn. Þetta er hans fyrsta þjálfarastarf en síðan hann lagði skóna á hilluna 2020 hefur hann verið sérfræðingur Seinni bylgjunnar á Stöð 2 Sport. Tjörvi Þorgeirsson verður aðstoðarmaður Ásgeirs Arnar. Ásgeir Örn er einn dáðasti sonur Hauka. Hann er uppalinn hjá félaginu og varð fjórum sinnum Íslandsmeistari með því áður en hann hélt út í atvinnumennsku 2005. Ásgeir Örn sneri svo heim 2018 og lauk ferlinum á Ásvöllum. Ásgeir Örn lék 252 landsleiki á árunum 2003-18 og var í íslenska liðinu sem vann silfur á Ólympíuleikunum 2008 og brons á EM 2010. Aðeins Guðjón Valur Sigurðsson hefur spilað á fleiri stórmótum en Ásgeir Örn. Illa hefur gengið hjá Haukum í upphafi tímabils. Liðið er í 10. sæti Olís-deildarinnar og tapaði með samtals tólf marka mun fyrir Anorthosis frá Kýpur í 2. umferð Evrópubikarsins um helgina. Ásgeir Örn stýrir Haukum í fyrsta sinn þegar þeir fá Íslands-, bikar- og deildarmeistara Vals í heimsókn á mánudagskvöldið.
Olís-deild karla Haukar Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira