Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Ég vakna yfirleitt um sjöleytið við klukku í hausnum á mér.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Í fyrsta sinn í þrjátíu ár vöknum við hjónin nú ein í húsinu því yngsta barnið er farið í háskóla og býr á heimavist.
Ég hafði það fyrir reglu að útbúa morgunmat fyrir heimasætuna en nú eru mín fyrstu verk að taka úr uppþvottavél og hita kaffi.
Anna kona mín setur í hana því það er vandasamara en að taka úr henni og ég þyki ekki nógu útsjónarsamur til þess.
En ég kann að raða í hillur og skúffur og kaffið sem ég bý til nýtur vinsælda á heimilinu svo þetta blessast nú allt saman.
Síðan lít ég blöð og fæ mér léttan morgunverð, lít kannski aðeins á tölvupósta og svara þeim sem nauðsyn krefur, sest svo inn á skrifstofu og byrja að vinna.“
Í hvaða heimilisverki ert þú a) mjög góður og duglegur í, b) afar lélegur í og slugsar?
„Ég hef gaman af að elda og sé um kvöldmatinn á heimilinu þegar tækifæri gefst. Ég hef gert það lengi og þykir hvíld í því.
Mér er hins vegar meinaður aðgangur að þvottahúsinu þar sem Anna ræður ríkjum. Ég get að vísu ekki haldið því fram að ég hafi gert ítrekaðar tilraunir til að ráðast þar inn.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
Ég er nú að fylgja úr hlaði nýrri bók sem heitir Játning og gerist að mestu leyti á Íslandi og í Austur-Þýskalandi þótt Ítalía komi líka við sögu.
Ég hef líka verið með annan fótinn uppi í Gufunesi þar sem Baltasar Kormákur leikstýrir Snertingu en við skrifuðum saman handrit að myndinni.
Það hefur verið afar ánægjulegt að fylgjast með tökunum, bæði inni á japanska matsölustaðnum sem búið er að smíða í stúdíóinu og líka í Lundúnum þar sem ég heimsótti þau um daginn.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Ég er mikill rútínumaður, vinn helst alla daga, byrja snemma morguns við skriftir og skrifa fram yfir hádegi en fer þá að sinna öðru, oft einhverju tengdu fjölmiðlabransanum sem ég vann í lengi. Þar á ég enn mjög marga vini og kunningja sem ég reyni að liðsinna eftir megni.
Svo skýst ég í fótbolta eða ræktina eftir hádegi og tek símarúnt eftir þörfum því sum málefni krefjast þess að fólk tali saman í stað þess að senda hvert öðru rafræn skilaboð af einhverju tagi.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Ég er yfirleitt farinn að sofa milli tólf og eitt því við borðum kvöldmat yfirleitt nokkuð seint og það er nauðsynlegt að melta matinn áður en maður leggst til hvílu. Mér þykja kvöldin góð en morgnarnir ekki síður svo ég reyni að fara ekki svo seint að sofa ég vakni ekki við hringinguna í kollinum upp úr birtingu.“