Mýkri og stelpulegri heimur
Þar með hefst ævilöng herferð sveitarinnar um að gera heiminn mýkri, stelpulegri og prýða hann fleiri synþlaglínum. Sveitin gaf út tilkynningu sem segir að það séu einmitt þeirra markmið en það má með sanni segja að platan hafi komið út á áhugaverðum tíma.

Tilviljanir og langþráð bylting
„Það er skemmtileg tilviljun að langþráð plata okkar í Kvikindi komi út í sömu viku og ég tek þátt í langþráðri byltingu með hugrökkum MH-ingum. Svona er stundum alheimurinn,“ segir Brynhildur Karlsdóttir, söngkona og einn af stofnendum hljómsveitarinnar. Hún bætir við að það fylgi því alls kyns tilfinningar að vera búin að senda frá sér þessa plötu en lagið Beta er tileinkað Elísabetu Segler, vinkonu Brynhildar sem tók eigið líf árið 2019.
„Þetta eru vægast sagt blendnar tilfinningar. Það er bæði bilaður fögnuður að gefa loksins plötuna út en hún er búin að vera í vinnslu í þrjú ár, fyrstu lögin voru samin árið 2019. Svo náttúrulega til að vera alveg hreinskilin þá er síðasta vika búin að róta svolítið i mínum tilfinningum. Mikil gleði en bæði súrt og sætt, allur tilfinningaskalinn.“
Popp og garg um ást, dauða og sálfræðinga
Í fréttatilkynningu segir að platan sé samin af hálfgerðum útlögum í eyðimörk andlegra geðshræringa og kvartlífskrísu, eins og meðlimir sveitarinnar séu að rúnta í þúsundasta sinn og ákveði loks að snarhækka í græjunum, úr þeim ómi popp og garg um ást, dauða og sálfræðinga.
„Þetta er að einhverju leyti uppgjör við síðustu tíu ár lífs míns, þegar ég var áhyggjulaus Ungfrú Ísland, áður en ég varð móðir, þegar ég hélt enn að lífið væri tilgangslaust og alltaf ástæða til að öskra eða gráta,“ segir Brynhildur en hún vakti fyrst athygli í tónlistarheiminum þegar hún vann Músíktilraunir með pönksveitinni Hórmónum.
Kvikindi var stofnað 2019 af þeim Brynhildi og Friðriki Margrétar- Guðmundssyni, sem hefur getið sér gott orð sem tónskáld og óperusmiður en hann vann tónlist ársins á Grímunni í fyrra. Valgeir Skorri Vernharðsson, heimsklassatrommari, slóst í för með þeim skömmu síðar. Því lýsa þau sér nú sem óstöðvandi þríeyki sem miðar hátt.
Tvær ástríður sameinast
Það er margt spennandi á döfinni en hljómsveitin stefnir á að halda útgáfutónleika snemma árs 2023.
„Ég er með þriggja mánaða barn þannig við ætlum aðeins að spara okkur og koma með einhverja sprengju á næsta ári.“
Undirbúningur fyrir tónleikana er hafinn þar sem öllu verður til tjaldað og dansrútínur eru í vinnslu en Brynhildur er með bakgrunn í dansi.
„Ég er upprunalega dansari og mér finnst ég vera það í grunninn. Ég hef þráð mjög lengi að fá að blanda saman tónlist og dansi sem eru tvær ástríður hjá mér og ég ætla að láta það gerast á þessum útgáfutónleikum,“ segir Brynhildur að lokum.