Skapa ævintýralegan heim með nýrri plötu Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 7. október 2022 14:32 Gunni Hilmarsson og Ágústa Eva mynda hljómsveitina Sycamore Tree. Aðsend Hljómsveitin Sycamore Tree er skipuð Gunna Hilmarssyni og Ágústu Evu Erlendsdóttir. Þau voru að senda frá sér plötuna Colors en hún hefur verið í bígerð í yfir þrjú ár. Blaðamaður tók púlsinn á Gunna. „
Það tók svo langan tíma að vinna plötuna að við höfum gefið út tvær aðrar plötur á meðan vinnan á Colors hefur staðið yfir, Western Sessions og Winter Songs,“ segir Gunni og bætir við: „Við hugsum hverja plötu sem concept, eitt verk, einn hljóðheim og erum með töluverðan bunka af lögum á lager sem við síðan römmum síðan og röðum í ákveðin hús eða heima.“ Gunni kemur úr heimi hönnuðar og Ágústa Eva úr leikhúsinu en bakgrunnur þeirra nýtast þeim vel. „Þess vegna er gaman fyrir okkur að leika okkur að því að skapa heima eða sviðsmyndir úr hverju verki eða plötu. Verkið er veglegt, ellefu lög og mikið nostrað við smáatriði. Sviðsmyndin falleg, dreymandi og mjög myndræn þar sem við vonum að það verði auðvelt fyrir hlustandann að fara í ferðalag um heima og geima á meðan hlustað er. Heimurinn er ævintýralegur en bæði einfaldur og sterkur í senn.“ View this post on Instagram A post shared by sycamoretreeband (@sycamoretreeband) Sykurhúðuð útgáfa Þá kom einungis til greina að láta öll lögin koma út á sama tíma á plötunni en ekki búta hana niður í smáskífur. „Því fyrir okkur þá er hún ein heild. Hún byrjar á titil laginu COLORS og endar svo á HOWL sem einmitt gefur hlustandanum vísbendingar um hvað Sycamore Tree gerir næst. Hvaða heim við sköpum næst. Það mun alveg koma á óvart. Við leyfum okkur líka á þessari plötu að daðra við elektrónisk element og tvö lög, Touché og How does it feel má skilgreina sem hreinræktað popp sem við höfum ekki gert áður. Við köllum það bara Sycapop, smá svona sykurhúðuð útgáfa af Sycamore Tree sem passar svo vel við áferðina á hinum níu lögunum.“ View this post on Instagram A post shared by sycamoretreeband (@sycamoretreeband) Útgáfutónleikar Sycamore Tree verður með útgáfutónleika í Fríkirkjunni í kvöld þar sem þau frumflytja plötuna. „Það verður frábært að spila svo plötuna í fyrsta sinn á útgáfudeginum 7. október og verðum við með stórsveit með okkur til að skila verkinu fullkomlega. Eftir það spilum við vel valin eldri lög og mikil veisla verður. Þetta verður í Fríkirkjunni sem er einstakt hús í svona tónleika. Framundan hjá okkur er svo að byrja á næstu plötu og smá jólaefni sem við erum að taka upp. Það verður spennandi og fallegt,“ segir Gunni að lokum.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Tengdar fréttir Lét tónlistardrauminn loksins rætast eftir fertugt Gunnar Hilmarsson fatahönnuður og tónlistarmaður talar um ástina, textana og tónlistarferilinn sem hann byrjaði um fertugt. 16. júlí 2020 20:00 Ágústa Eva um samstarfið: „Hann segir bara já og amen elskan mín“ „Samstarfið gengur hnökralaust fyrir sig sem ég rek rakleitt til Gunna, hann er einn ljúfasti og opnasti maður sem ég hef kynnst. Hann segir bara já og amen elskan mín og brosir við öllu því sem hendist í hans fang frá mér,“ segir söngkonan Ágústa Eva um samstarf hennar og Gunna Hilmars. 6. september 2020 11:46 Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið Fundu ástina á Domino's Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið Fleiri fréttir Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira
Lét tónlistardrauminn loksins rætast eftir fertugt Gunnar Hilmarsson fatahönnuður og tónlistarmaður talar um ástina, textana og tónlistarferilinn sem hann byrjaði um fertugt. 16. júlí 2020 20:00
Ágústa Eva um samstarfið: „Hann segir bara já og amen elskan mín“ „Samstarfið gengur hnökralaust fyrir sig sem ég rek rakleitt til Gunna, hann er einn ljúfasti og opnasti maður sem ég hef kynnst. Hann segir bara já og amen elskan mín og brosir við öllu því sem hendist í hans fang frá mér,“ segir söngkonan Ágústa Eva um samstarf hennar og Gunna Hilmars. 6. september 2020 11:46