Ofvirkur og félagar hans í Ármanni lentu ekki í neinum vandræðum þegar liðið mætti Fylki í fyrri viðureign kvöldsins í gær.
Ármann vann að lokum öruggan 16-1 sigur, en það var ofvirkur sem átti tilþrif kvöldsins þegar hann tók út fjóra liðsmenn Fylkis og breytti stöðunni í 2-1 snemma leiks.
Ármann hefur nú unnið þrjár viðureignir af fjórum í upphafi tímabils og sitja í öðru sæti deildarinnar ásamt Þórsurum sem þó eiga leik til góða. Fylkismenn sitja hins vegar í sjöunda sæti með einn sigur í fjórum leikjum.
Elko tilþrif gærkvöldsins má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.