Matur

Sigurður valinn besti köku­gerðar­maður í heimi

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Sigurður Már Guðjónsson stendur með míkrafóninn fyrir miðju, glaður með titilinn. Við vinstri hlið hans er Alex Schmitt frá Þýskalandi, sem valinn var bakari ársins.
Sigurður Már Guðjónsson stendur með míkrafóninn fyrir miðju, glaður með titilinn. Við vinstri hlið hans er Alex Schmitt frá Þýskalandi, sem valinn var bakari ársins. Odd Stefan

Sigurður Már Guðjónsson hjá Bernhöftsbakaríi var valinn kökugerðarmaður ársins á heimsþingi bakara og kökugerðarmanna í gær. Titillinn er með æðstu viðurkenningum sem kökugerðarmönnum getur hlotnast í heiminum.

Sigurður Már er vitaskuld ánægður með titilinn en alþjóðasamtök bakara og kökugerðarmanna stóðu fyrir heimsþinginu. Innan alþjóðasamtakanna eru 300.000 bakarí og kökugerðir í fimm mismunandi heimsálfum.

Er þetta ekki einn stærsti titill sem hægt er að fá í þessum bransa?

„Það segja þeir!“ Segir Sigurður Már hógvær í samtali við fréttastofu.

Verðlaunin eru gríðarmikil viðurkenning.Odd Stefan

Sigurður Már er einnig formaður Landssambands bakara og tók því þátt í skipulagningu heimsþingsins. Hann segist hafa fengið upplýsingar um hver yrði valinn bakari ársins fyrir um tveimur dögum síðan.

„Ég var búinn að fá upplýsingar um hver yrði bakari ársins því hann átti að hafa samband við mig og fá að nota bakaríið til að baka brauð – en eitthvað fannst mér þetta orðið skrýtið hvað þeir lágu lengi á upplýsingum um konditor ársins. Hann hafði ekki samband og þá fór mig að gruna ýmislegt. Svo sögðu þeir við mig: Nú hefurðu tvo daga til að undirbúa eftirréttinn,“ segir Sigurður Már.

Hann bauð þátttakendum á heimsþinginu upp á sérstaka útgáfu af köku úr sinni smiðju, sem valin var kaka ársins árið 2011.

„Nú verður maður bara að vera duglegur að baka kökur, nú hefst vinnan,“ segir Sigurður Már léttur í bragði.

Verðlaunaafhendingin fór fram við hátíðlega athöfn á Grand Hótel í gær.Odd Stefan

Tengdar fréttir

Risa­­stór á­­fangi í ís­lenska bakara­bransanum

Ríflega sjötíu bakarar eru staddir hér á landi til að taka þátt á heimsþingi bakara og kökugerðamanna. Í kvöld fer fram gala-kvöldverður á Grand Hótel þar sem heiðraðir verða bakari ársins og kökugerðamaður ársins, en sá síðarnefndi er Íslendingur. Nöfn sigurvegara verða tilkynnt í kvöld.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.