Stórlaxarnir farnir að taka í Ytri Rangá Karl Lúðvíksson skrifar 24. ágúst 2022 11:12 Alistair Ewing með 22 punda hænginn sem hann veiddi við Heiðarbrún í Ytri Rangá Mynd: West Ranga river Iceland FB Það er farið að bera meira á stórlöxum í Ytri Rangá en vanir veiðimenn eiga að venjast en við erum ekki að nefna neitt sem er undir 90 sm.
Það veiðist nefnilega töluvert af laxi sem er 70-90 sm á hverju ári en flestir af þeim fara beint í klakkistur svo það sé hægt að rækta undan þeim þetta eftirsótta stórlaxagen. Einhverjir af þessum stórlöxum fá aftur á móti frelsið og er sleppt og gætu þá væntanlega ratað aftur á flugurnar eða maðkinn seinna á tímabilinu. Einn af þessum stórlöxum sem hefur komið að landi kom fyrir fáum dögum af Heiðarbrún en laxinn sem var hængur var mældur 97 sm langur og vigtaður 22 pund. Þetta er enn eitt dæmið um að 100 sm reglan sé samnefnari með þyngdinni 20 pund sé ekki nákvæmur kvarði, þvert á móti. Eins og sést á myndinni er þetta virkilega þykkur og flottur hængur sem hefur vafalaust látið hafa aðeins fyrir sér. Veiðivísir bíður spenntur eftir frekari fréttum af stórlöxum haustsins úr ánum.
Stangveiði Rangárþing ytra Mest lesið 103 sm lax úr Ytri Rangá Veiði Íslensku hrosshárin slógu í gegn Veiði Nýr söluaðili veiðileyfa í Eystri Rangá Veiði 10 laxar í Grímsá fyrsta daginn Veiði Miðá í Dölum til SVFR Veiði Lokatölur úr flestum ánum komnar í hús Veiði Af stórlöxum í Nesi Veiði Mjög góð bleikjuveiði í Ásgarði Veiði Ennþá fullt af laxi í Urriðafossi Veiði Góður frágangur fer betur með búnaðinn Veiði