Tónlist

Tekur lögin sem skapa mestu stemninguna

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Guðrún Árný kemur fram á Þjóðhátíð í ár.
Guðrún Árný kemur fram á Þjóðhátíð í ár. Aðsend

Tónlistarkonan Guðrún Árný hefur vakið athygli í íslenska tónlistarheiminum fyrir kraftmikla rödd sína. Hún er þaulvön að koma fram og syngja fyrir stóran hóp áhorfenda og hlakkar mikið til að syngja fyrir og með öllum Þjóðhátíðargestum í ár.

Þjóðhátíð 2022 fer fram með pompi og prakt í Heimaey í lok júlí í ár. Fjölbreytt flóra íslensks tónlistarfólks mun stíga á svið og skemmta gestum en hátíðin er nú haldin í fyrsta skipti frá árinu 2019. Lífið á Vísi tekur hér púlsinn á tónlistarfólkinu og fær nánari innsýn í atriðið þeirra á Þjóðhátíð.

Hvenær fórst þú fyrst á Þjóðhátíð?

Fyrst 2002, og rigndi gjörsamlega niður.

Hvað finnst þér skemmtilegast við þessa hátíð?

Hversu margir koma saman og allir taka tímann frá til að njóta með vinum og fjölskyldu.

Við hverju mega hátíðargestir búast þegar þú stígur á svið?

Ég ætla bara að spila i beinni beit, öll þau lög sem ég er helst beðin um í partýjum sem skapa mestu stemninguna. 

Reyna að vera með lög sem flestir aldurshópar þekkja.

Hvað er uppáhalds Þjóðhátíðarlagið þitt?

Þar sem hjartað slær.

Hvernig ætlar þú að undirbúa þig fyrir stóru stundina?

Ég spila svo mikið þessa dagana að ég er í raun að prufukeyra programmið um allan bæ svo ég mun ekki þurfa mikinn undirbúning. EN VÁ HVAÐ ÉG HLAKKA TIL að hafa þennan mikla fjölda að syngja með mér. Ég mun mæta tímanlega og njóta þess að vera í eyjunni fyrir og eftir gigg. 

Enda svo bara með fólkinu í brekkunni fram eftir. Get ekki beðið.

Tengdar fréttir

„Gleymdum vissulega öllu þegar við mættum á svið“

Hljómsveitin Sprite Zero Klan skaust upp á stjörnuhimininn árið 2017 með laginu Tíkin Mín. Þeir eiga að baki sér ófá öflug danslög og þar á meðal nokkur lög sem eru tileinkuð Þjóðhátíð en Sprite Zero Klan verður einmitt í dalnum í ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.