Tónlist

Eftirvænting, vonbrigði, spenna og vonleysi verða að einum melankólíu kokteil

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Krassasig var að senda frá sér lagið 1-0.
Krassasig var að senda frá sér lagið 1-0. Aðsend

Fjölhæfi listamaðurinn krassasig (Kristinn Arnar Sigurðsson) var að senda frá sér lagið 1-0 og er lagið hluti af væntanlegri breiðskífu.

Krassasig er með sanni fjölhæfur listamaður sem hefur komið víða að sem leikmyndahönnuður, leikstjóri og tónlistarmaður. Tónlist hans er gjarnan lýst sem draumkenndri, orkumikilli og einlægri.

Tilfinningar tjáðar í formi tónlistar

Fyrsta breiðskífa krassasig er væntanleg seinna á þessu ári en forsmekkur af því sem koma skal er smáskífan 1-0. Í fréttatilkynningu segir að þetta lag sé skínandi dæmi um einlægni hans og hæfileika til þess að tjá tilfinningar sínar í formi tónlistar.

Tónlistina hefur hann mikið unnið í einrúmi, semur lög og texta, spilar á öll hljóðfæri og pródúserar. Krassasig hefur einstaklega gaman af myndmáli og því má oft finna ljóðrænar og dularfullar líkingar í textum hans.

Viðburðarík helgi

Lagið 1-0 varð til yfir eina helgi. Á föstudegi samdi krassasig grunninn að laginu á leiðinni á stefnumót. Grípandi og kraftmikið, endurspeglar það tilfinningar hans þennan dag, spennu og eftirvæntingu. Á sunnudeginum var honum ljóst að ekki yrði meira úr þessu stutta ástarævintýri og í þeim anda kláraði hann lagið, samdi texta sem er fullur af vonbrigðum og vonleysi. Krassasig blandaði því öllum þessum tilfinningum saman í laginu. Eftirvænting og vonbrigði, spenna og vonleysi verða einn melankólíu kokteill.

„Ég fór að hugsa um frasann Hver er staðan? og hvað ef maður myndi bara svara „1-0“ sem er opin merking og þýðir í raun bara að eitthvað sé búið að gerast. Jafnvægið hefur verið rofið, annar aðilinn er yfir,“ segir krassasig.

Hér má heyra lagið 1-0:


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.