Systur flytja lagið Með hækkandi sól og eru átjánda atriðið á svið. Hér fyrir neðan má sjá uppröðunina á sviðinu í kvöld og myndbönd við öll lögin. Við verðum svo auðvitað með beina textalýsingu héðan frá Tórínó.
Fyrir þá sem ekki hafa tíma til þess að hlusta á öll lögin þá er hér myndband með broti úr öllum 25 lögunum sem komust á úrslitakvöldið.
1. Tékkland - We Are Domi - Lights Off
2. Rúmenía - WRS - Llámame
3. Portúgal - MARO - saudade, saudade
4. Finnland - The Rasmus Jezebel
5. Sviss - Marius Bear - Boys Do Cry
6. Frakkland - Alvan and Ahez - Fulenn
7. Noregur - Subwoolfer - Give That Wolf A Banana
8. Armenía - Rosa Linn - Snap
9. Ítalía - Mahmood & Blanco - Brividi
10. Spánn - Chanel - SloMo
11. Holland - S10 - De Diepte
12. Úkraína - Kalush Orchestra - Stefania
13. Germany - Malik Harris - Rockstars
14. Litháen - Monika Liu - Sentimentai
15. Aserbaísjan - Nadir Rustamli - Fade to Black
16. Belgía - Jérémie Makiese - Miss You
17. Grikkland - Amanda Georgiadi Tenfjord - Die Together
18. Ísland - Systur - Með hækkandi sól
19. Moldóvía - Zdob și Zdub & Fraţii Advahov - Trenuleţul
20. Svíþjóð - Cornelia Jakobs - Hold Me Closer
21. Ástralía - Sheldon Riley - Not The Same
22. Bretland - Sam Ryder - Spaceman
23. Pólland - Ochman - River
24. Serbía - Konstrakta - In Corpore Sano
25. Eistland - Stefan - Hope
Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir eru fulltrúar fréttastofunnar á Eurovision í Tórínó á Ítalíu. Munu þær birta fréttir, viðtöl, hlaðvörp og auðvitað líka reglulega þætti af Júrógarðinum.
Alla umfjöllun okkar um Eurovision keppnina má finna HÉR á Lífinu á Vísi.