Handviss um að Selfyssingar vinni oddaleikinn í Krikanum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. apríl 2022 13:31 Elvar Örn Jónsson fagnar í leik Selfoss og Hauka 22. maí 2019. Með sigri í honum tryggðu Selfyssingar sér Íslandsmeistaratitilinn. vísir/vilhelm Elvar Örn Jónsson, landsliðsmaður í handbolta, er handviss um að hans gömlu félagar í Selfossi vinni FH og komist áfram í undanúrslit Olís-deildarinnar í kvöld.
Selfyssingar mæta FH-ingum í oddaleik í Kaplakrika klukkan 19:30 í kvöld. Elvar er staddur hér á landi eftir að hafa gengist undir aðgerð á öxl í fyrradag. Hann er enn verkjaður og á síður von á því að hann mæti í Krikann í kvöld. „Ég efast um það. Ég er ekki alveg klár í að fara út núna. En mig langar mikið að sjá Selfoss komast í undanúrslit. Ég hef alltaf trú á mínum mönnum. Þeir koma til baka eftir síðasta leik,“ sagði Elvar í samtali við Vísi í dag. Hann var í lykilhlutverki þegar Selfoss varð Íslandsmeistari í fyrsta og eina sinn 2019, eftir 3-1 sigur á Haukum. Elvar skoraði ellefu mörk þegar Selfyssingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn með 36-25 sigri á Haukum 22. maí 2019. Það var hans síðasti leikur með íslensku liði í bili en þá um sumarið gekk hann í raðir Skjern í Danmörku. Elvar, sem leikur með Melsungen í Þýskalandi, fylgist vel með sínu gamla liði og reynir að horfa á sem flesta leiki með því. „Það er reyndar skemmtileg tilviljun að Selfoss er oftast að spila á sama tíma og ég úti. En þegar það er ekki reyni ég að horfa,“ sagði Selfyssingurinn. Leikur FH og Selfoss hefst klukkan 19:30 og verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Vísi og á Vísi.
Olís-deild karla UMF Selfoss Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Íslenski boltinn „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira