Handbolti

Elverum og PSG gerðu jafntefli í fyrri viðureign 16-liða úrslita í Meistaradeildinni

Atli Arason skrifar
Eric Johansson í landsleik með Svíum gegn Pólverjum. 
Eric Johansson í landsleik með Svíum gegn Pólverjum.  Getty Images

Hinn sænski Eric Johansson tryggði Elverum jafntefli gegn PSG í fyrri viðureign liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í handbolta, lokatölur 30-30.

Kamil Syprzak var markahæsti leikmaður vallarins en hann gerði 12 mörk fyrir PSG. Aron Pálsson og Orri Freyr Þorkelsson, leikmenn Elverum, komust hvorugir á blað í leiknum.

Seinni viðureign liðanna í 16-liða úrslitum verður leikinn í París 7. apríl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×