Svíar í undanúrslit eftir ótrúlega endurkomu gegn Norðmönnum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. janúar 2022 21:14 Valter Chrintz skoraði sigurmark Svía í kvöld. Marijan Murat/picture alliance via Getty Images Svíar eru komnir í undanúrslit Evrópumótsins í handbolta eftir eins marks sigur gegn Norðmönnum í kvöld. Norðmenn voru með yfirhöndina lengst af og komust mest sex mörkum yfir, en Svíar stálu sigrinum á lokasekúndunum.
Fyrir leik kvöldsins voru liðin jöfn að stigum í öðru og þriðja sæti riðilsins og því um algjöran úrslitaleik að ræða. Noðrmenn voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik en áttu erfitt með að slíta Svíana frá sér framan af. Þeir tóku þó gott áhlaup undir lok fyrri hálfleiksins og náðu mest sex marka forskoti áður en flautað var til hálfleiks. Staðan þegar gengið var til búningsherbergja var 14-9, Norðmönnum í vil. Svíarnir voru þó ekki tilbúnir að gefast upp, enda hafa þeir gefið það út að þeir nenna ekki að spila leikinn um fimmta sætið. Því var ekkert annað í boði en að endurstilla liðið og láta vaða í síðari hálfleik. Ekki leið á löngu áður en sænska liðið var búið að minnka muninn niður í eitt mark í stöðunni 18-17. Norðmenn náðu þó að auka forskot sitt í fjögur mörk á ný, en Svíarnir jöfnuðu svo loks leikinn þegar um tvær mínútur voru eftir og staðan 23-23. Norðmenn voru með betri markatölu fyrir leikinn og því þurftu Svíarnir að vinna leikinn til að koma sér í undanúrslit. Norðmenn klikkuðu á sinni sókn og því höfðu Svíarnir tækifæri á að stela sigrinum. Þeir fiskuðu vítakast þegar 15 sekúndur voru til leiksloka, Valter Chrintz fór á vítalínuna og skoraði af öryggi. Norðmenn fóru í sókn, en Sander Sagosen skaut framhjá og niðurstaðan varð ótrúlegur eins marks sigur Svía, 24-23. Svíar eru því komnir í undanúrslit, en Norðmenn þurfa að sætta sig við það að leika um fimmta sæti.
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Enski boltinn Tryggvi þarf að taka sig á í skólanum Körfubolti Gera grín að Jürgen Klopp Fótbolti Víkingar skipta um gír Íslenski boltinn Auglýsa leik kvöldsins með minnsta skilti sem fyrirfinnst Körfubolti Garnacho þarf að splæsa máltíð á allt liðið Enski boltinn Afar óvænt endurkoma Alberts gegn Þóri Fótbolti Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Fótbolti Líklegast að Ísland mæti Doncic á EM og spili í Póllandi Körfubolti Lewis Hamilton: Ég verð aldrei gamall maður Formúla 1 Fleiri fréttir „Settum í sjötta gír í seinni hálfleik“ „Getum gengið stoltar frá borði“ Uppgjörið: Grótta - Haukar 21-31 | Haukar munu etja keppi við Fram í úrslitum Aron og Bjarki Már gerðu sitt í París Magnaður Sigvaldi sökkti Magdeburg „Viðurkenni að maður fékk fiðring í magann” Elliði Snær og Andri Már í sigurliðum Uppgjörið: Fram - Valur 22-20 | Fram í bikarúrslit Fyrrverandi þingmaður tekur við formennsku hjá FH Hetja heimsmeistaranna handleggsbrotnaði „Litla höggið í sjálfstraustið“ Hægt að hlusta frítt á Þóri Hergeirs segja frá leyndarmálunum Lyftu bikarnum fyrir framan þær en hafa síðan ekki unnið Val í þúsund daga Missti tönnina, tók hana upp og fór í bikarúrslit Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar „Veit ekki hvar on-takkinn er“ „Þetta bara svíngekk“ Sjötta tap Hauks og félaga í röð Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 34-29 | Stjarnan flaug í úrslit Hafa ekki tapað undanúrslitaleik í nítján ár Ætla ekki að bíða aftur í 24 ár Sveinn spilar í fimmta landinu Róbert hættir með Gróttu eftir tímabilið Dagur skilaði sínu fyrir Montpellier sem er komið áfram Elliði Snær frábær í góðum sigri Karabatic-ballið alveg búið Haukar fara til Bosníu Íslendingaliðið með stórsigur og á góðu róli Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Sjá meira