Styrkur til mannúðaraðstoðar í norðurhluta Eþíópíu Heimsljós 25. janúar 2022 14:02 Ung móðir í búðum í Ayder í Tigrayfylki. HK Hjálparstarf kirkjunnar hlaut á dögunum 20 milljóna króna styrk frá utanríkisráðuneytinu til mannúðaraðstoðar í Amhara fylki sem er nágranna fylki Tigray í norðurhluta Eþíópíu. „Í kjölfar átaka sem geisað hafa í landinu er ljóst að þörfin fyrir mannúðaraðstoð hefur sjaldan verið meiri, einkum lífsbjargandi aðgerðir sem tryggja fólki aðgang að vatni, fæðu og lífsviðurværi,“ segir Bjarni Gíslason framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkunnar. Hann segir að mikil eyðilegging hafi orðið á innviðum samfélagsins, skólum, heilsustofnunum og vatnskerfum. „Við komum til með að nýta styrkinn til verkefna í samvinnu við Lúterska heimssambandið sem er samstarfsaðili Hjálparstarfs kirkjunnar á vettvangi. Verkefnið mun ná til um 20 þúsund manna,“ segir hann. Átök hafa sem kunnugt er geisað í nyrstu fylkjum Eþíópíu í rúmt ár. Að mati Sameinuðu þjóðanna hangir líf 5,5 milljóna íbúa á bláþræði vegna matarskorts. Tugþúsundir íbúa hafa flúið yfir til Súdan og átökin hafa breiðst út til fylkjanna Amhara og Afar þar sem 450 þúsund íbúar eru á hrakhólum. „Markmiðið er að fólk sem þurft hefur að yfirgefa heimili sín vegna ófriðarins og býr við óöruggar aðstæður og líður skort á helstu nauðsynjum fái fæðu, hreint vatn og aðgang að hreinlætisaðstöðu og geti verið öruggt þar sem það er og snúið heim þegar aðstæður lagast,“ segir Bjarni. „Fólk sem þurft hefur að flýja vopnuð átök í Tigray býr við skelfilegar aðstæður, þessi góði stuðningur íslenskra yfirvalda gerir kleift að bjarga mörgum mannslífum,“ segir Sophie Gebreyes framkvæmdastjóri Lútherska heimssambandsins í Eþíópíu. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál. Þróunarsamvinna Eþíópía Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður
„
Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Eþíópía Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður